Menntamál - 01.12.1939, Page 47
MENNTAMÁL
173
að námskeið hafa verið sett á stofn fyrir unglinga í þess-
um efnum, og að þeim loknum gangi ungliðarnir undir
prófraun, en standist þeir prófið, fá þeir sérstakt Rauða
kross merki sem vitnisburð þess. Sambandið á milli ung-
liðadeildanna og R. kr. félaganna, eða réttara sagt tak-
mörkin hafa víðast hvar verið miðuð við vissan aldur, en
þetta er þó hvergi fast ákveðið og getur hæglega farið eftir
því, sem bezt þykir eiga við á hverjum stað.
Lítið myndi nú gagna sá lærdómur, sem unglingarnir
hljóta á námskeiðum þessum ef hann fengi hvergi að njóta
sína eða koma fram. En við getum gengið út frá því sem
alveg gefnu, að alltaf geti þau atvik komið fyrir, bæði í
heimahúsum og utan þeirra, þar sem ungliðunum gefst
kostur á að beita þessari kunnáttu sinni, og ég er þess
fullviss að foreldrar, sem láta sér annt um uppeldi barna
sinna og menntun munu telja þeim það ótvírætt í hag að
þau læri slík fræði, sem hér um ræðir. Hér er hægt að
benda á eitt ákaflega sláandi dæmi. Það mun hiklaust
teljast ótvíræður og mikill kostur fyrir unga telpu, sem
um sumarmánuðina ræður sig til að gæta ungbarns að
geta sýnt skilríki fyrir því, að hún hafi lært undirstöðu-
atriðin í meðferð þeirra. Það er ekki einungis gleði og
léttir fyrir hana sjálfa við starfið að vita sig geta leyst
það vel og réttilega af hendi, heldur kærkomið öryggi fyrir
mæður þær, sem trúa henni fyrir börnum sínum.
Rauði kross íslands hefir þegar hafið vísi til heilsu-
verndarstarfsemi meðal skólabarna landsins með útgáfu
myndaspjalda þeirra, er send hafa verið í skólana, og sýna
þau ýmsar þær reglur, er unglingar eiga að temja sér til
varnar heilsu sinni og til þess að fegra og fá útlit sitt og
framkomu.
Oss er það fullkomlega ljóst, að ekki verður hafin nein
veruleg og áhrifarík ungliðastarfsemi nema að foreldrar
barnanna sýni starfsemi þessari velvilja og hvetji börnin
til þátttöku í henni, en okkar mesti stuðningur er sam-