Menntamál - 01.12.1939, Síða 51
MENNTAMÁL
177
það er ekki ástæða til að láta hugfallast fyrir það, og þrátt
fyrir allt hlýtur maður að fylgja hverri þeirri hreyfingu
og veita henni athygli, er leggur sig fram til að árangur
náist á þessu sviði. Starf ungliðanna, sem þessi liður ræðir
um, hefir einkum verið í því fólgið, að deildirnar hafa
skipzt á bréfum og blöðum, en þó hafa sérstaka þýðingu
haft bækur þær, eða öllu heldur hefti þau, sem ungliðarnir
sjálfir hafa búið til og fyllt að efni. Hefti þessi líkjast einna
mest ljósmyndamöppum og eru oft mjög skemmtileg. Ung-
liðinn, sem senda ætlar slíka bók frá sér út í heiminn, til
félaga í framandi landi, skrifar um land sitt og þjóð, land-
fræðilega legu landsins, lýsir þjóðinni, atvinnuvegum henn-
ar og háttum, samgöngum, framförum, listum o. s. frv. Ef
til vill ritar hann sérstaklega um fæðingarstað sinn eða
dvalarstað. í stuttu máli er alveg takmarkalaust það, sem
skrifa má um. Þetta límir hann svo allt inn í heftið, og
náttúrlega er mjög ákjósanlegt að myndir eða póstkort
fylgi efninu. Þá er bókin er fyllt, er hún ferðbúin út í heim-
inn til ungliðanna fyrir handan hafið. Sumir velja ferða-
sögur til frásagnar, þar sem öllum þeim atriðum, sem ég
hefi nefnt, er komið fyrir. En nú fylgja nokkur vandræði
þessu sem öðru, en það er málið. í nágrannalöndum vorum
hafa þessar skriftir á milli deildanna einkum farið fram
á einhverju skandinavisku málanna, ensku eða þýzku.
Þegar ungliðadeildin hefir svo ákveðið, hvert hún ætlar að
senda bók sína, er bezt fyrir hana að ráðgast við kennara
sinn og njóta tilsagnar hans í þessum efnum. Víða tíðkast
það, að kennararnir láta ungliðana gera nokkrar stílaæf-
ingar um þessi efni og þannig er sameiginlega
komizt að lausn málsins. Stundum er bezti stíllinn verð-
launaður og síðan notaður til hægðarauka. Nú verða kann-
ske einhverjir sérstakir örðugleikar á um þýðingu lesmáls
neðan við ljósmynd t. d., og senda'þá ungliðarnir lesmálið
til aðalstjórnar ungliðadeildanna ásamt með bókinni og
sér þá aðalstjórnin um þýðinguna og sendingu bókarinnar,
12