Menntamál - 01.12.1939, Síða 54
180
MENNTAMÁL
5. Þar eð handiðja er nú tekin upp í alla fasta barnaskóla,
og fer vaxandi, eins og nýafstaðin landssýning bar vott
um, þá sé hert á ákvæðum um handavinnunám í öllum
ungmennaskólum, háum sem lágum, og engum þeirra
látið líðast það ófremdarástand, að þar sé hvorki kennd
handiðja né leikfimi.
6. Hvatt sé til aukins diciplins, bindindisfræðslu og kristi-
legrar starfsemi í skólunum. Snorri Sigfússon.
Steingrímur Arason sextugur
Steingrímur Arason varð
sextugur 26. ágúst s. 1.
Stjórn S. í. B. fór heim til
hans þann dag og árnaði
honum heilla. Steingrimur
hefir verið kennari við
Kennaraskójann síðan árið
1920. Hann er því í þeim
skilningi lærifaðir þeirra
barnakennara, sem síðan
hafa komið í Kennaraskól-
ann, en í víðtækari merk-
ingu er hann lærifaðir
okkar allra, þar sem hann
hefir kennslufræðilega haft
v í ð t æ k áhrif á barna-
kennslu í öllum skólum landsins í tvo áratugi. Um braut-
ryðjandastarf S. A. í íslenzkum skólamálum vísast til
greinar um hann í síðasta hefti. Menntamál óska Stein-
grími allra heilla, og að hann megi enn vinna mörg og
merk störf í þágu íslenzkra barna og íslenzkra skólamála.
S. Th.