Menntamál - 01.12.1939, Blaðsíða 56
182
MENNTAMÁL
Bjarni Bjarnason, skólastjóri, fimmtugur
Bjarni Bjarnason skóla-
stjóri að Laugarvatni varð
fimmtugur 23. október s. 1.
Við það tækifæri sendi
stjórn S. í. B. honum ávarp,
skrautritað á geitaskinn
og ofið upp á útskorið
kefli. Valgerður Briem rit-
aði, en Ríkharður Jónsson
skar út. Var allur frágang-
ur hinn prýðilegasti. Á-
varpið var eigin hendi
undirritað af öllum stjórn-
armönnum S. í. B. og er
svohljóðandi:
„Bjarni Bjarnason skóla-
stjóri Laugarvatni. Sam-
band íslenzkra barnakennara sendir yður vinarkveðju,
árnaðaróskir og þakkir á fimmtugsafmæli yðar.
Vér þökkum margra ára farsæl foringjastörf í félags-
málum kennara. Sem fyrsti formaður S. í. B. árin 1921—29
unnuð þér brautryðjanda starf fyrir samtök vor og áttuð
drjúgan þátt i að fleyta þeim yfir erfiðasta áfangann.
Vér þökkum margvísleg störf í þágu kennslumálanna í
landinu.
Loks þökkum vér drengilega vörn og sókn á Alþingi fyrir
málefni barna og kennara.
Árnaðaróskir kennarastéttarinnar fylgja yður. Vér ósk-
um yður langra lífdaga, mikilla og giftusamlegra afkasta,
og yður og fjölskyldu yðar óskum vér gæfuríkrar fram-
tíðar.“
Menntamál gera árnaðaróskir þær, sem í ávarpinu felast,