Menntamál - 01.03.1955, Blaðsíða 14
6
MENNTAMÁL
En hér er enn lítið um slíkar stofnanir. Ríkið hefur eigi
reist heimili fyrir fávita á skólaskyldualdri. Eitt fávita-
hæli hefur verið byggt og annað er í smíðum, en ætla má,
að þau verði notuð fyrir fullorðna fávita, annað fyrir
karla, en hitt fyrir konur. Hið þriðja, sem reist verður,
mun ætlað börnum. En eitt fávitaheimili er þó til fyrir
börn, er það að Skálatúni í Mosfellssveit. Hafa einstakl-
ingar með tilstyrk ríkis og bæjar hrundið þar merkilegu
átaki í framkvæmd.
Því er ekki að leyna, að hér á landi hafa mjög van-
þroska börn og jafnvel fávitar setið víða á skólabekk svo
árum skiptir án nokkurs árangurs í námi. Er varla hægt
að ásaka skólana, þó að þeir hafi ekki hörku til að reka
þessi börn af höndum sér, meðan vöntun er á sérstökum
stofnunum fyrir þau.
Nú má telja vafasamt, að æskilegt sé að senda öll þessi
börn á hæli eða í heimavistarstofnanir. Það er vitanlega
oft óhjákvæmilegt að fjarlægja þau frá heimilum þeirra
ýmissa orsaka vegna. Þá er enginn annar kostur fyrir
hendi en að senda þau í sérstakar stofnanir. En margir
foreldrar vilja gjarnan og hafa ástæður til að hafa börn
sín heima, þótt þau séu lítt þroskuð andlega, en þurfa
hins vegar að fá handa þeim kennslu eða aðra aðstoð.
Fyrir þessi börn mætti telja dagskóla eða dagheimili
æskilegri og þar að auki ódýrari fyrir þjóðfélagið en
heimavistarstofnanir. Á þessum dagheimilum mætti kenna
hvers konar létta handavinnu við hæfi barnanna og ýmis
létt störf, sem ef til vill gætu orðið þeim síðar styrkur til
eigin framfærslu eða a. m. k. til dægradvalar.
Allt er þetta mikið vandamál. Það er þörf á að reisa
stofnanir fyrir þessi börn, en fyrst þarf að gera sér
glögga grein fyrir þörfinni. Mér vitanlega liggja enn
ekki fyrir skýrslur um tölu þessara barna né heldur á
hvaða stigi þau eru. Þegar upplýsingar um þetta eru
fyrir hendi, er fremur hægt að gera áætlanir um, hve