Menntamál - 01.03.1955, Blaðsíða 41
MENNTAMÁL
33
SIGURÐUR GUNNARSSON:
Brezkir skólar.
Niðurlag.
Á framhaldsskólastiginu, (nem. 11—15 ára), mátti sjá
margt, sem er frásagnarvert, þótt hér verði aðeins á fátt
drepið.
Áður var frá því greint, að nemendum á þessu stigi er
skipt í tvo stóra hópa, að undangengnum hæfnisprófum,
— í „Secondary Modern“, eins konar verknámsskóla, og
„Secondary Grammar", sem eru bóknámsskólar. Um
„Grammar“-skóla mun ég ekki ræða hér að sinni. Þar er
allt starf eðlilega miðað við framhaldsnám með allmikilli
heimavinnu. Þar eru margir verðandi embættismenn þjóð-
arinnar aldir upp, oft til 17 ára aldurs. Fremur
lítill hluti nemenda fer um þrettán ára aldurinn í þriðja
skólaflokkinn á þessu stigi, „Technical“-skóla. — Ég kom
í nokkra „Grammar“- og „Technical“-skóla, og tel þar
margt athyglisvert, og víða unnið ágætlega, enda allir
kennarar með sérpróf í sínum greinum.
Til þess að takmarka mál mitt, ætla ég að skýra aðeins
lítið eitt frá „Secondary Modern“-skólunum (verknáms-
skólunum), enda voru kynni mín tiltölulega meiri af þeim.
Það er sannast sagna, að ég var hrifinn af ýmsum þeim
skólum og starfi þeirra, ekki sízt hinni f jölþættu og glæsi-
legu verklegu kennslu. Yfirleitt veita þeir svo vel skipu-
lagða og hagnýta fræðslu, að til fyrirmyndar er.
I samtali við mig skýrði skólastjóri nokkur frá kennslu-
starfinu m. a. á þessa leið: „Eins og þú vafalaust veizt,
eru allir þessir nemendur fremur treggefnir, og við það
3