Menntamál - 01.03.1955, Blaðsíða 32
24
MENNTAMÁL
yfirleitt kunnugt. Það var því að vonum, að uppreisn var
gerð gegn ítroðslunni. Það var að vonum, er tímabær
áhugi á betri kostum og mannleg nýjungagirni leiddi menn
frá flestu því, er fylgt hafði ítroðslunni, eins því, sem telja
má frumskilyrði fyrir árangursríku bóklegu námi. Hér
var stefnan leiðrétt óþarflega hvatlega, og er nú nokkur
vandi á höndum að slaga ekki um of í átt til gamla farsins.
í öllum skólum fyrir heilbrigða menn, frá barnaskólum
til háskóla, er til þess ætlazt, að nemendur læri til hlítar
einhver efni, annað hvort af bókum eða a. m. k. bóklegs
eðlis. Þessar námskröfur eru ýmist markmið eða leið að
markmiði. Það er því einsætt, að miklu máli skiptir, að
nemendur læri hagnýtar námsaðferðir þegar í byrjun
náms. Skal það sagt fullum stöfum, að nemandi, sem
kann ekki að læra bóklegar greinar utan bókar, kann ekki
að læra þær. Sá kann ekki heldur að læra, sem getur ekki
gert sér grein fyrir, hvaða efni er nauðsynlegt að kunna
utan bókar. Þannig verður kennari einnig að gera sér
fulla grein fyrir því, hvaða tæki og tækni eiga við í
náminu í hverri grein eða hverju sinni. En hér verður
einvörðungu vikið að því, hvaða lag hentar bezt, þegar
Námstími: 9 mín. Námsefni:
16 meiningar- 5 stuttar frásögur,
lausar samst. alls um 170 orö
HundraSstala at- Hundraöstala at-
riða, sem nem. riða, sem nem.
mundu mundu
S a c K H W HK o » Ig C » ra w
fl — p £ P > g. 8 B '*• P. p g crt- » M, >
Oi os
A B A B
Öllum tímanum varið til lestrar . . 35 15 43 35 16 46
yb tímans varið til yfirheyrslu .... 50 26 52 37 19 52
tímans varið til yfirheyrslu .... 54 28 52 41 25 63
3/5 tímans varið til yfirheyrslu .... 57 37 65 42 26 62
4/ tímans varið til yfirheyrslu .... 74 48 65 42 26 62