Menntamál - 01.03.1955, Blaðsíða 21
MENNTAMÁL
13
sem hefur miðlað þekkingu sinni fleiri Ólafsfirðingum
en nokkur annar maður fyrr eða síðar.
Það er vel farið, að svipur hans og mót standi hér við
stigann, við veginn, sem æskan gengur á leið sinni til
mennta og meiri þroska, því að meðal hennar var lífsstarf
hans allt.
Það er ósk mín, að þeir eiginleikar, sem hann átti
bezta sem kennari og fræðari, megi ætíð ríkja meðal kenn-
ara þessarar stofnunar.
Um leið og ég svo tek á móti þessari ágætu gjöf fyrir
hönd skólans í Ólafsfirði, leyfi ég mér einnig að fela hana
til varðveizlu skólanefnd Ólafsf jarðar, kennurum skólans,
nemendum hans og umsjónarfólki þessa húss.
Megi hún standa hér um framtíð, Grími Grímssyni,
fyrsta skólastjóranum í Ólafsfirði, til verðugs lofs og
húsi þessu til sæmdar.
Gamlir nemendur Gríms Grímssonar gáfu skólanum
líkanið. Ríkarður Jónsson gerði myndina, er hún af eiri.