Menntamál - 01.08.1962, Qupperneq 8
98
MENNTAMÁL
2. spurning:
Hverjar eru meginbreytingarnar, sem ráð er gert fyrir
í frumvarpinu?
Svar:
Aðalbreytingarnar eru fólgnar í því, að gert er ráð
fyrir, að komið verði á fót framhaldsdeild, sem útskrifi
stúdenta og veiti nemendum ennfremur kost á framhalds-
menntun með nokkru kjörfrelsi og verði þannig eins kon-
ar vísir að kennaraháskóla. Ennfremur er gert ráð fyrir
því að koma á fót undirbúningsdeild sérnáms, sem búi
nemendur undir kennaranám í sérgreinum, svo sem handa-
vinnu, íþróttum, tónlist, teikningu, húsmæðrafræðslu og
önnur uppeldisstörf.
3. spurning:
Hvenær verður frumvarpið lagt fyrir Alþingi?
Svar:
Ríkisstjórnin hefur þegar rætt frumvarpið og er sam-
mála um þá grundvallarstefnu, sem í frumvarpinu felst.
Við þá athugun, sem fram fór á málinu í menntamálaráðu-
neytinu og eftir þær viðræður, sem fóru fram við ýmsa
aðila, er málið varðar, varð það samt niðurstaðan að leggja
frumvarpið ekki fyrir Alþingi það, sem nú hefur nýlokið
störfum, heldur undirbúa málið vandlega fyrir Alþingi,
er það kemur saman í haust. Áður en frumvarpið yrði lagt
fram, þótti sérstaklega æskilegt að hafa undirbúið ræki-
lega reglur þær, sem gilda eiga um þá framhaldsdeild, sem
gert er ráð fyrir að útskrifi stúdenta. 1 samvinnu við há-
skólann, menntaskólana og að sjálfsögðu við Kennara-
skólann, þarf að íhuga vandlega, hvort einhverjar breyt-
ingar eru nauðsynlegar á náminu í almennu kennara-
deildinni og þá hverjar, og hvernig vega á gildi sérgreina
kennaradeildarinnar til jafns við sérgreinar máladeilda
og stærðfræðideilda hinna almennu menntaskóla. En gera
verður að sjálfsögðu ráð fyrir því, að námskröfur til stú-
dentsprófs framhaldsdeildar Kennaraskólans verði alger-