Menntamál - 01.08.1962, Blaðsíða 126
216
MENNTAMÁL
ara, sem stjórn kennarasamtakanna hefur bent á, til að fara yfir
handritið. — Þegar ný kennslubók er prentuð í fyrsta sinn, er upp-
lagið venjulega haft lítið. Kennarar eru svo beðnir — að fenginni
reynslu við notkun bókarinnar — að senda útgáfunni skriflegar at-
hugasemdir, ef einhverjar eru, áður en næsta upplag er prentað. —
Nemendur í skyldunámsskólum munu nú vera alls á öllu landinu
um 30 þúsund. Öllum þessum hóp þarf útgáfan að sjá fyrir bókum.
Starfsemi útgáfunnar nær því beint eða óbeint til flestra íslenzkra
heimila.
Samkvæmt lögum útgáfunnar er heimilt að gefa skólunum kost
á að velja á milli tveggja eða fleiri bóka í sömu námsgrein. Útgáfan
vill fyrir sitt leyti reyna að framkvæma þetta eftir því sem aðstaða
reynist til, þótt það hafi nokkru meiri kostnað í för með sér, þar
sem það skapar skólunum frjálsræði í bókavali. Er nú þegar farið
að framkvæma þessa heimild. Barnaskólar geta valið um tvær bækur
í stafsetningu og framhaldsskólar um tvær við kennslu í kristnum
fræðum og mannkynssögu. Á næstu árum verða væntanlega til tvenns
konar skólaljóð, tvennar biblíusögur fyrir barnaskóla, tvær íslands-
sögur og tvenns konar reikningsbækur fyrir yngri börn.
Ríkisútgáfan liefur frá því í ársbyrjun 1957 starfrækt Skólavörubúð.
Hlutverk hennar er einkum að greiða fyrir skólunum um útvegun
ýmiss konar skólavara, kennsluáhalda og kennsluhandbóka. í búð-
inni eru ennfremur til sölu allar fáanlegar bækur útgáfunnar.
Unnið er að }>ví á vegum ríkisútgáfunnar að koma upp skólasajni.
í það er m. a. ætlunin að safna kennslubókum bæði íslenzkum og
erlendum. Síðar, þegar aðstaða leyfir, er svo ætlunin að hafa þetta
fyrirhugaða safn til sýnis fyrir kennara og aðra áhugamenn.
Samskipti ríkisútgáfunnar og skólanna eru eðlilega mjög mikil.
Yfirleitt hafa þessi samskipti gengið ágætlega. Kennarar hafa jafn-
an tekið því með skilningi og velvild, sem áfátt kann að hafa verið
í þjónustu útgáfunnar við skólana. — Fyrir þetta vill útgáfan þakka
og senda öllurn skólamönnum og nemendum á fræðsluskyldualdri
sínar beztu kveðjur.