Menntamál - 01.08.1967, Page 21
MENNTAMÁL
115
BRANDUR JÓNSSON skólastjóri:
Heyrnardauf börn
Brandur Jónsson er fæddur í
Kollafjarðarnesi 21. nóv. 1911.
Hann lauk stúdentsprófi frá
M.R. 1936, prófi í forspjalls-
vísindum við H.í. 1937 og kenn-
araprófi frá K.I. sama ár. Brand-
ur nam kennslu heyrnleysingja
við Staatlichen Gehörlosen
Schule í Berlín og Det kgl. Döv-
stumme-Institut í Kaupmanna-
höfn og talkennslu við Statens
Institut for talelidende i Kaup-
mannahöfn árin 1939 og 1940.
Einnig stundaði Brandur nám
við The Clark School for the
deaf í Northampton, Mass. í
Bandaríkjunum 1942—1943.
Brandur hefur verið skólastjóri
Heyrnleysingjaskólans í Reykja-
vík frá árinu 1944,
I.
Foreldrafélag.
í september 1966 var stofnað Foreldra- og styrktarfélag
heyrnardaufra. Aðalmarkmið þess er að vinna að lrags-
munamálum og velferð allra þeirra, sem líða af heyrnar-
deyi'u. Rannsóknir síðari ára hafa leitt í ljós, að um algert
heyrnarleysi er mjög sjaldan að ræða, og mun ég koma að
því síðar, en vegna þess var félaginu valið nafnið Foreldra-
og styrktarfélag heyrnardaufra, þó margir eða flestir þeir,
sem félagið vill hjálpa og styrkja, séu svo heyrnarlitlir, að