Menntamál - 01.02.1972, Qupperneq 14
og vinni í sem nánustu samráði innbyrðis og við
námsstjóra.
5. Verkefni
Meginverkefni hverrar námsefnisnefndar verði
sem hér segir:
a) að skila Menntamáiaráðuneytinu tillögu um
skilgreind námsmarkmið og námsskrá, sbr.
liði 2—3 í kaflanum urn skipulag og áfanga-
greiningu;
b) að skila ráðuneytinu samþykktri áætlun um
námsmat hins fyrirhugaða námsefnis, sam-
inni af námsmatssérfræðingi nefndarinnar;
c) að fyigjast með (i) forprófunaráfanga hins
nýja námsefnis, sbr. 4.-8.; (ii) almennum
prófunaráfanga, sbr. 9.—13.; og (iii) síðari
endurskoðun námsefnisins, sbr. 14.
6. Samræming
Samhæfing og samræming á störfum hinna
ýmsu námsefnisnefnda er brýn nauðsyn, þar sem
ella gæti orðið hætta á því, að einstök mikilvæg
námsmarkmið yrðu útundan og óþarfur tvíverkn-
aður yrði við að ná öðrum. Gert er ráð fyrir
því, að þessi vandi verði leystur með eftirgreind-
um hætti:
a) annars vegar með fundum yfirmanns skóla-
rannsóknadeildar og allra námsstjóra, þar
sem námsmarkmið yrðu rædd, borin saman,
„kortlögð" og reynt að skipta þeim eðlilega
milli greina, auk þess sem námsstjórar
mundu kynna á slíkum fundum það náms-
efni, sem útbúið er á vegum þeirra;
b) hins vegar með því að fela ákveðnum aðila
— yfirmanni deildarinnar eða tilteknum
námsstjóra — að lesa yfir og bera saman allar
þær námsskrár og námsbækur, sem samdar
verða.
í þessari grein hefur verið reynt að lýsa grund-
velli og hugsanlegu framtíðarskipulagi þeirrar
endurskoðunar námsefnis og kennslu, sem fram
fer á vegum skólarannsóknadeildar Menntamála-
ráðuneytisins. Einstökum námsgreinum, sem þeg-
ar hafa verið teknar til endurskoðunar, verða
síðan gerð nánari skil í öðrum pistlum, sem hér
fara á eftir.
Eigi þetta átak um endurskoðun námsefnis og
kennslu að geta komið að verulegu og almennu
gagni sem áfangi að bættri menntun, virðist það
einkurn vera eftirfarandi, sem keppa þarf að:
1) Að eíla íræðilegar rannsóknir á námi og
námsárangri. Fyrirætlanir um aukningu kerf-
isbundins námsmats, sem getið lieíur verið
hér að framan, miða að þessu.
2) Að tengja endurskoðunarstarfið sem bezt við
skólana, bæði kennaramenntastofnanir og
eins barna- og gagnfræðaskólana sjálfa. Eftir
að forpróíun hvers nýs námsefnis í nokkrum
bekkjardeildum er hafin, virðist lieppilegt,
að síðari áfangar viðkomandi endurskoðun-
ar- og nýjungastarfs fari að mestu leyti fram
úti í skólunum.
3) Að tengja endurskoðun námsefnis og kennslu
við annað umbótastarf í fræðslu- og upp-
eldismálum. Elókin og fjölhliða vandamál á
borð við skólamál verða bezt leyst með sam-
ræmdu átaki.
MENNTAMÁL
8