Menntamál


Menntamál - 01.02.1972, Page 19

Menntamál - 01.02.1972, Page 19
var ákveðið að athuga fyrst, hvað unnt væri að gera fyrir gagnfræðaskólana, en niðurstöður opin- berra prófa bentu m. a. til þess, að nemendur þeirra næðu ekki þeim árangri, sem eðlilegur gæti talizt. Athugun, sem gerð var á námsefni skólanna, leiddi í ljós, að í lieild var kennslu- tíminn illa nýttur. Endurtekningar voru óeðli- lega miklar, kennslan virtist mjög einhæf og markviss undirbúningur undir frekara nám var mjög í molum. Fyrsta skrefið til að ráða bót á þessu var sam- ræming gagnfræðaprófsins í stærðfræði (auk þriggja annarra greina), en álitið var, að með ]tví móti mætti fá skólana til að breyta kennslu- háttum sínum til betra horfs. En af Jrví, sem sagt hefur verið hér að framan, má vera ljóst, að upptaka nýs námsefnis og nýrra kennsluhátta, sem ætlað er að leiða til betri námsárangurs og meiri þroska nemendanna, byggist fyrst og fremst á starfi kennaranna sjálfra. Haustið 1970 gaf Ríkisútgáfa námsbóka í sam- vinnu við skólarannsóknadeild Menntamálaráðu- neytisins út bráðabirgðakennslubækur í stærð- fræði til notkunar í 7. bekk, og haustið 1971 kom út framhald þessara bóka fyrir 8. bekk. Var um að ræða þýðingu samnorrænna tilraunatexta, sem samdir voru og kenndir á Norðurlöndunum fjórum á síðasta áratug. Nýjustu kennslubækur, sem samdar hafa verið á Norðurlöndunum, eru ávöxtur þessarar tilraunakennslu. Tilgangurinn með áðurnefndri bráðabirgða- útgáfu var þríþættur: í fyrsta lagi að gefa kenn- urum kost á að kynna sér af eigin raun, bæði með lestri og kennslu efnisins, þær nýjungar, sem eru að ryðja sér til rúms og verða væntan- lega allsráðandi innan fárra ára; í öðru lagi til notkunar á námskeiðum fyrir kennara og til al- menns stuðnings við kynningu nýrra hugmynda um stærðfræðikennslu; og í þriðja lagi til þess að afla reynslu af notkun þessa nýja efnis hér- lendis, sem unnt yrði að nýta við gerð kennslu- bóka. Þessi útgáfa fékk miklu betri undirtektir en búizt hafði verið við. Það er því greinilegt, að ekki þarf að kvíða álmgaleysi kennaranna, þegar upptaka nýjunga í stærðfræðikennslu er annars vegar. í vetur fer fram tilraunakennsla í 7 bekkjar- deildum í 5 skólum, og annast 7 kennarar þessa kennslu. Námsefnið er samið nokkurn veginn jafnhliða kennslunni, og er stuðzt við þá reynslu, sem fékkst af kennslu bráðabirgðaútgáfunnar s.l. skólaár, auk þess sem liugmyndir úr nýjum er- lendum kennslubókum eru nýttar eftir því sem tök eru á. Að aflokinni kennslu hvers þáttar er námsefnið endurskoðað og gerðar á því breyt- ingar eftir því sem ástæður þykja til. Ætlunin er, að þetta námsefni verði gelið út næsta sumar til almennrar notkunar. Þó er sennilegt, að þeir skólar, sem óska eftir að kenna þetta námsefni, verði að fullnægja tilteknum skilyrðum að því er varðar undirbúning kennaranna, til þess að fá efnið afhent. Auk þessa námsefnis kemur næsta sumar á markaðinn bráðabirgðanámsefni fyrir landsprófs- deildir og ahnennan þriðja bekk. Nú stendur yfir athugun á námsefni barna- skólanna, og standa vonir til, að næsta haust verði unnt að hefja tilraunakennslu nýs nárns- efnis í nokkrum deildum 1. bekkjar barnaskóla. Hér á landi er nú mikill skortur á hæfum stærðfræðikennurum. Þetta er ekki séríslenzkt fyrirbæri, heldur er þetta svo í flestum löndum heims. Meginorsakir þessa eru hinar sívaxandi þarfir atvinnuveganna fyrir stærðfræðilega menntað fólk, sem af ýmsum ástæðum kýs frek- ar að fara út í atvinnulífið en að starfa í skól- unum. Það er nauðsynlegt að vinna stöðugt að auknum gæðum stærðfræðikennslunnar allt frá fyrstu bekkjum barnaskóla upp í háskóla. Það er vissulega leitt til þess að liugsa, að þeir aðilar, sem öðrum frenmr gera kröfur um aukna og bætta stærðfræðimenntun, skuli óbeint standa í vegi fyrir því, að þetta sé unnt. Það er verðugt íhugunarefni fyrir fræðsluyfirvöld, hvernig unnt er að leysa þetta vandamál. HEIMILDARRIT; 1. Harold Fletcher and Arnold A. Howeli: Mathe- matics witli Understanding. 2. W. Servais and T. Varga: Teaching School Mathe- matics. 3. Butler and Wren: The Teaching of Secondary Mathematics. MENNTAMÁL 13

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.