Menntamál - 01.02.1972, Page 25
Örnólfur Thorlacius:
Breyttir
kennsluhættir
í líffræði
Snemma árs 1969 skipaði Menntamálaráðu-
neytið að frumkvæði Skólarannsókna ráðuneytis-
ins fimm manna nelntl til að gera tillögur um
endurskoðun námsefnis og kennslu í líffræði í
barna- og gagnfræðaskólum. í nefndinni sátu,
auk undirritaðs, sem veitti henni forstöðu, þau
Eyþór Einarsson grasafræðingur, Náttúrufræði-
stofnun íslands; dr. Guðmundur Eggertsson
erfðafræðingur, kennari (nú prófessor) við Há-
skóla íslands; Jón Baldur Sigurðsson kennari,
Gagnfræðaskólanum við Vonarstræti; og Sigrún
Guðbrandsdóttir kennari, Vogaskóla.
Skýrsla nelndarinnar kom út í september sama
ár á vegum Skólarannsókna Menntamálaráðu-
neytisins. Eftir það var fljótlega Itafi/t handa um
þá endurskoðun, sent lýst er í skýrslunni. Sá, sem
þetta ritar, hefur haft með höndum stjórn end-
urskoðunarinnar sem námsstjóri við Skólarann-
sóknadeild Menntamálaráðuneytisins.
Engum, senr afskipti hefur af kennslu í líf-
fræði í íslenzkum barna- og gagnl'ræðaskólum,
mun dyljast þörfin á breyttu námsel'ni og
kennsluháttum. Allar kennslubækur eru gamlar
og efni þeirra því að vonum víða úrelt og áherzla
lögð á önnur þekkingarsvið en nú þykir ástæða
til. í nefndarálitinu kemur fram, að „nefndin
telur margar þessar kennslubækur góðar, miðað
við það kennslukerfi og þær ltefðir í skólamálum
sem þær eru felldar að. En að undanförnu hef-
ur . . . farið frarn gagnger endurskoðun á inn-
taki kennsluefnis víða um lönd . . . Er Jdví sí/.t
til lasts höfundum núverandi kennslubóka, þó
að rit Jteirra reynist ekki nothæf við aðstæður,
sem ójrekktar voru, þegar ]>au voru samin.“ Við
ófullnægjandi kennslubækur bætist skortur á að-
stöðu og á tækjum til líffræðikennslu við flesta
eða alla skóla.
Námsskrá og kennslubækur barna- og gagn-
fræðaskóla skipta líffræðinni í dýrafræði, grasa-
fræði og líkams- og heilsufræði. Liggur stundum
við, að Jtessar greinar séu kenndar sem sjálfstæð-
ar og óháðar kennslugreinar. í tillögum líffræði-
nefndar og í allri íramkvæmd endurskoðunar-
innar er stefnt að samJiáttun Jtessara hluta líf-
fræðinnar í eina heild, og er Jrað raunar í sam-
ræmi við þróun Jtessara mála í öðrum löndum.
MENNTAMÁL
19