Æskan - 01.11.1970, Blaðsíða 12
Ungmenni á uppleið
560
HreggviSur Þorsteinsson er Reykvíkingur í húð og
hár. Fæðingardagur hans er 8. janúar 1947, og býr
hann nú hjá foreldrum sínum á Skólavörðustígn-
um. Þangað rölti ég eitt kvöld eftir vinnu, veður
var eins og það bezt gerist á októberkvöldum og
ég búinn að ákveða að fá mér hressandi göngutúr um-
hverfis Tjörnina — en fyrst ætlaði ég þó að líta inn til
Hreggviðs í þeim tilgangi að kynna hann fyrir ykkur. Ég
veit þó, að þið sem eruð félagar í sundfélaginu Ægi, þekk-
ið hann mjög vel sem þjálfara ykkar, enda búinn að þjálfa
börn og unglinga í sundi s.l. fjögur ár. Ég hringdi dyra-
bjöllunni heima hjá Hreggviði, og þarna stóð hann í dyr-
unum, stór og stæðilegur, nýkominn úr sundi. Hreggviður
vinnur í Landsbankanum í Austurstrætinu, þjálfar sem sé i
frítimum sinum og notar mikinn hluta af þeim einnig til
að þjálfa sjálfan slg í iþróttum. Hreggviður er eitt þeirra
ungmenna, sem margir taka sér til fyrirmyndar, því að eins
og góðum íþróttamanni sæmir, notar hann hvorki tóbak
né áfengi sér til fróunar — — og sannarlega vill hann
nota krafta sína í þágu þjóðfélagsins okkar, hann er eitt
þeirra ungmenna, sem eru á uppleið.
Og síðan byrjaði viðtalið:
— Hvenær fórst þú að hafa áhuga á sundi, Hreggviður?
— Nú, það var þegar ég lærði að synda í gömlu sund-
laugunum í Laugardalnum 5 eða 6 ára að aldri. Mér fannst
ákaflega gaman að svamla í vatninu, og svo hafði ég það
snemma á tilfinningunni, að það væri eins hollt að synda
og að borða hafragraut og taka inn lýsi á hverjum morgni.
En svo vildi það því miður til, þegar ég var kominn á
unglingsaldurinn, að ég fékk þetta svo vel þekkta skelli-
Viðtal
mánaðarins
er við
Hreggvið
Þorsteinsson
☆
nöðruæði. Þeystist ég um á skellinöðru í fjögur ár, og
vanrækti þá alveg sundíþróttina. Átti. ég tvær skellinöðrur,
þá fyrri seldi ég og stórtapaði á þeim viðskiptum. Svo
fjórða ár skellinöðruæðisins fór ég að hugsa rökrétt á nýj-
an leik, ég fór nefnilega að skynja betur gildi sundíþróttar-
innar. Varð þá skellinaðran mín föl, og viti menn, ég gat
selt hana án þess að tapa nokkuð á þeim viðskiptum. Því
næst lagði ég aftur leið mína [ sundlaugina.
— Nú erl þú Ægismaður mikill, hvenær gekkstu í það
sundfélag?
— Það var þegar ég var á tóifta aldursárinu. Ég valdi
Ægi einkum vegna þess, að faðir minn hafði verið í því, og
sé ég ekki eftir þeirri ákvörðun minni. Eftir fyrrnefnt skelli-
nöðruæði mitt fór ég nú að æfa af fullum krafti hjá Ægi
ásamt Guðmundi Harðarsyni sundkappa. Síðan tókum við
Guðmundur að okkur að byggja sundfélagið upp ásamt
Torfa Tómassyni, sem nú er aðalmaður félagsins, en reynd-
ar er Ægir stofnaður 1927. Tókum við Guðmundur síðan
fyrir fjórum árum það að okkur að vera þjálfarar sundfé-
lagsins. Ákvéðum við sem sé að byggja félagið upp alveg
frá grunni. Byrjuðum við á því að þjálfa unga krakka, og
smátt og smátt fór þetta starf að bera ávöxt. Hefur félagið
nú á að skipa mjög góðu sundfólki, og sem dæmi má
nefna, að á siðasta unglingameistaramóti, sem haldið var
sfðustu helgi ágústmánaðar nú í sumar, skorti okkur í
Ægi aðeins 40 stig til þess að vera með hærri stigatölu en
öll hin sundfélögin samanlagt, er þátr tóku í mótinu.
— Hvernig er svo þjálfunin byggð upp hjá ykkur?
— Ætið í lok september byrjar nýtt æfingatímabil hjá
okkur, og er þá miðað við, að allt sundfólkið sé þjálfunar-
laust. Fyrsta einn og hálfan mánuðinn eru krakkarnir þjálf-
aðir í lyftingum, og síðan eru þeir látnir synda smávegis.
Því næst hefst erfiðasta timabilið, sem yfirleitt stendur
yfir í 11/2—2 mánuði. Þá látum við krakkana hlaupa 3—10
km á dag, og síðan eru þau látin synda 12 km til jafnaðar
dag hvern, nefnum við þetta úthaldstimabilið. Síðan tekur
við svonefnt „uppkeyrslutímabil". Þá er lyftingum alger-
lega sleppt, en krakkarnir látnir synda mikið í sprettum
stuttar vegalengdir og með löngum hvíldum á milli. Fer
þá að koma í Ijós, hvaða vegalengd hverjum hentar bezt
að synda og hvers konar sund á komandi keppnistímabili.
„Uppkeyrslutímabilið" stendur í um einn mánuð, og þá á
hver einstaklingur að vera orðinn eins góður og hann
bezt getur verið, og síðan hefst sjélft keppnistímabilið.
Sá góði árangur, sem við í Ægi náðum á unglingameistara-
mótinu í sumar, sannar, að við erum á réttri leið, og sann-
arlega er þessi góði árangur mjög uppörvandi fyrir okkur.
— Hvað eru mörg sundfélög í Reykjavík?
— Þau eru fjögur, og hafa öll jafna aðstöðu fyrir starf-
semi sína.