Æskan - 01.11.1970, Blaðsíða 44
f Whitehali, skammt frá Trafalgar Square, eru margar stjórnar-
skrifstofur brezka heimsveldisins. Þarna eru líka margir skraut-
lega klæddir varðmenn, og svipbreytingar á andliti þeirra eru
jafn fáséðar og á Ijónunum á Trafalgar Square.
dýragarðinn var hitinn um 20 stig og dauft sólskin. Stúlkurnar
byrjuðu á því að fó sér ís, en síðan hófst gangan. Þær byrjuðu
á því að skoða fuglana. Þar sem þetta var árla dags, gengu
verðirnir um með kústa og slöngur og þvoðu búrin. Er þau höfðu
skoðað erni og aðra ránfugla, var gengið í páfagaukahúsið. Ekki
þurfti neinn leiðarvísi þangað, gargið i fuglunum nægði. Fyrir
utan fuglahúsið voru trönur, flamingóar og fleiri fuglar, hinir
virðulegustu á að líta og háleggjaðir mjög. Stúlkurnar fóru yfir
í vinstri heiming garðsins í gegnum undirgang og skoðuðu ugl-
urnar og fóru siðan að Snowdon dýrasafninu. Ekki voru uglurnar
allar árennilegar, en snæuglan, sem líka er til á íslandi, var
einna fallegust. Snowdon-fuglabúrið er með þeim hætti, að hægt
er að ganga í gegnum það. í þessu stóra fuglabúri, sem er
reyndar heimur út af fyrir sig, eru margir tilbúnir fossar, og gróð-
urinn er fjölbreyttur. Fuglategundir þar inni munu vera um 50.
Næst komu þau að apabúrum, þar sem apakettir ýmissa tegunda
léku listir sínar. Einn sat ákaflega spekingslegur og horfði á
mannskapinn. Annars er það óvanalegt, að aparnir séu lengi
kyrrir á sama stað. Eftir dýragarðinum gengur skurður, sem er
fær bátum. Eftir honum ganga bátar, sem flytja fólkið fram og
aftur, og eru þetta hin vinsælustu farartæki eftir aðsókninni að
dæma. Kengúrurnar voru ósköp vingjarnlegar. Þær sátu á aftur-
fótunum og studdu sig við sína sterku og miklu rófu og nörtuðu
í gulrætur og epli, sem þeim höfðu verið gefin rétt áður. Það
hlýtur að vera mikið verk að halda dýragarðinum hreinum, enda
voru víða menn við hreingerningar. Þarna voru merkileg dýr,
svokölluð yak frá Tíbet, Kasmír og suðvestur Kfna. Þetta minnti
á sambland af nauti og sauðnauti, og þeir drógu hárið niður
undir jörð. í hjartarhúsinu voru auk stóru dýranna litlir bambar,
ákaflega fallegir. Þarna voru afrískir bufflar og evrópskir bison-
ar saman í húsi, og þar inni var mikil fjósalykt. Einnig voru þarna
villihestar, en í síkjum fyrir utan voru gullfiskar. Rósailmurinn
var dásamlegur, enda allt i fullum blóma. Því miður voru giraff-
arnir ekki úti, en aftur á móti úlfaldarnir. Gíraffarnir voru inni,
þeir voru ákaflega hreinlegar og huggulegar skepnur, fannst
stúlkunum, og þeir snæddu morgunverðinn af beztu lyst. Þessu
næst fóru þau í fiskasafnið. Það var dimmt fyrir augum, þegar
komið var inn, en fiskarnir voru í upplýstum búrum til beggja
592