Æskan - 01.11.1970, Blaðsíða 62
Litli skák-
snillingurinn
Amir Schuster er aðeins sex
ára gamall, en hann er samt
svo mikill snillingur í skák, að
hann er nefndur hinn ókrýndi
skákkóngur lands síns, ísraels.
Hann hefur teflt síðan hann var
4 ára, og nýlega mátaði strák-
urinn skákmeistara ísraels, Sí-
mon Kagan. Amir fannst sjálf-
um sigurinn vera léttur. Nú býr
hann sig af kappi undir að
mæta heimsmeistaranum. —
Það verður nú erfitt að keppa
við hann, viðurkennir Amir litli!
Bréf hafa verið skrifuð allt frá því ritlist-
in kom til sögunnar. Ýmsar venjur hafa
því skapazt um útlit eða ramma bréfsins,
en hér verður aðeins getið tveggja. Fyrsta
reglan, sem ber að temja sér, er að til-
greina í upphafi bréfsins, hvar og hvenær
bréfið er skrifað, t. d. Reykjavík, 3. janúar
1970, Flatey á Breiðafirði, 22. nóvember
1969. Önnur reglan er að rita efst eða
neðst á pappírsörkina nafn sitt
heimili og aðsetursstað, t. d.:
Jón Jónsson
Hringbraut
Reykjavik
Pétur Pétursson
Selalæk
Rangárvallahreppi (Rang.)
Þetta siðasttalda er til hægðarauka fyr-
ir viðtaltgfldann, þvi að með þessu móti
nafn sendanda og póstfang
þegar hann svarar bréfinu.
nægilegt, að sendandinn sé
utan á umslaginu, því að um-
slagið getur týnzt, og margir klippa fri-
merki af umslögum, en þá er það ónýtt
og torvelt að geyma i möppu eða sliku.
Framhald.
I
LeikfönR úr leir: leikhvolpur — uxar við
kerrudrátt og ökumaður — kýr með hreyf-
anlegt höfuð.
þess að þeir gætu lialdið því. Lengst
af var Indland skipt í mörg land-
svæði, sem hvert fyrir sig hafði sína
yfirstjórn.
Einn þessara héraðskonunga átti
son, að nafni Gotama. Hann var al-
inn upp við mikið óhóf og auðlegð,
en þegar hann var á ferðalögum unt
ríki föður síns sá lrann, að það voru
fáir, sem lifðu sliku velsældarlífi.
Hann sá gamalt og sjúkt fólk, fá-
tækt fólk og hungrandi og örbirgð
allt í kring um sig. Hann ákvað að
yfirgefa höll föður síns til þess að
ferðast út í heiminn í leit að vizku
og tilgangi h'fsins.
í mörg ár reikaði Gotama lótgang-
andi víðs vegar um Indland. Fyrst
gerði hann tilraun til þess að lifa lífi
hins snauða, en það færði honum
ekki þá þekkingu lífsins, sem hann
þráði. En dag nokkurn, er hann sat
undir tré og hvíldi sig, greij) liann
ný hugsun. F(')lkið var óhamingju-
samt vegna þess að það skorti svo
margt, hugsaði hann. Ef hægt væri
að bæta úr þessum skorti, fyndi það
frið og yrði hamingjusamt.
Gotama lagði enn af stað um land-
ið til þess að predika þessa nýju hug-
sjón fyrir fólki, sem hann náði til.
Hann sagði, að enginn mætti stela,
svíkja eða drekka. Fólkið hlustaði ;i
hann, og kallaði hann Búddha, sem
þýðir himi vitri.
Enn í dag, eftir tvö þúsund ár, eru
milljónir manna í Asíulöndum, sem
játa Búddhatrú.
610