Æskan - 01.11.1970, Blaðsíða 47
Jólakötturinn
Ljóð: JÓHANNES ÚR KÖTLUM
Lag: INGIBJÖRG ÞORBERGS
1. Þið kannizt við jólaköttinn,
sá köttur var gríðarstór.
Fólk vissi’ ekki hvaðan hann kom
eða hvert hann fór.
Hann glennti upp glyrnurnar sínar,
glóandi báðar tvær.
Það var ekki heiglum hent
að horfa í þær.
Kamparnir beittir sem broddar,
upp úr bakinu kryppa há,
og klærnar á loðinni löpþ
var ljótt að sjá.
Því var það, að konurnar kepptust
við kamba og vefstól og rokk,
og prjónuðu litfagran lepp
eða lítinn sokk.
2. Því kötturinn mátti’ ekki koma
og krækja í börnin smá.
Þau urðu að fá sína ílík
þeim fullorðnu hjá.
Og er kveikt var á jólakvöldið
og kötturinn gægðist inn,
stóðu börnin bísperrt og rjóð,
m'eð böggulinn sinn.
Hann veifaði stélinu sterka,
bann stökk og hann klóraði’ og blés,
og var ýmist uppi i dal
eða úti um nes.
Hann sveimaði, soltinn og grimmur,
í sárköldum jólasnæ,
og vakti í hjörtunum hroll
á hverjum bæ.
3. Ef mjálmað var aumlega úti,
var ólukkan samstundis vís.
Allir vissu’, að hann veiddi menn,
en vildi ekki mýs.
Hann lagðist á fátæka fólkið,
sem tekk enga nýja spjör
fyrir jólin — og baslaði og bjó
við bágust kjör.
Frá því tók hann ætið í einu
allan þess jólamat,
og át það svo oftast nær sjálft,
ef hann gat.
Sum höfðu íengið svuntu
og sum höfðu fengið skó,
'eða eitthvað, sem þótti þarft,
en það var nóg.
4. Því kisa mátti’ engan eta,
sem einhverja flíkina hlaut.
Hún hvæsti þá heldur ljót
og hljóp á braut.
Hvort enn er hún til veit ég ekki,
en aum yrði hennar för,
ef allir eignuðust næst
einhverja spjör.
Þið liafið nú kannske í huga
að hjálpa, 'ef þörf verður á.
Máske enn finnist einhver börn,
sem ekkert fá.
Máske, að leitin að þeim sem líða
af ljós-skorti heims um ból,
gefi ykkur góðan dag
og gleðileg jól.