Æskan - 01.11.1970, Blaðsíða 35
Ahrif
áfengis
Sigurður
Gunnarsson
8.
Hætta á sjúkdómum
Neyzla áfengis getur valdið margs konar
slysum, sem leiða til sjúkrahúsvistar um
lengri eða skemmri tima, og oft til ör-
kumla eða dauða. Er þá einkum átt við
vinnuslys, umferðarslys o. s. frv. En einn-
ig geta innvortis sjúkdómar og I einstaka
tilfellum geðsjúkdómar verið afleiðing
áfengismisnotkunar. Hörgulsjúkdómar, til
dæmis hörgull á B-fjörvi, eru mjög al-
gengir hjá ofdrykkjumönnum. Barka- og
lungnasjúkdómar verða oftast miklu erf-
iðari hjá drykkjumönnum en öðrum. Slím-
himnurnar í koki, vélinda, maga og þörm-
um skemmast. Misnotkun áfengis veldur
einnig oft sjúkdómum í lifur, nýrum og
hjarta.
Rannsóknir hafa sýnt ótvírætt, að
drykkjumenn hafa lægri meðalaldur en
þeir, sem ekki neyta áfengis.
Öldum saman var áfengið mikið notað
sem ,,læknislyf“. Nú á dögum notar lækn-
isfræðin áfengið alls ekki sem lyf gegn
sjúkdómum. Hins vegar er það mjög mik-
ið notað sem tæki til að leysa upp efni,
sem hafa læknisfræðilegt gildi.
Af hvaða ástæðum skyldi mönnum hafa
dottið í hug, að áfengið gæti hjálpað þeim
gegn sjúkdómum?
Vafalaust er það vegna þess, að áfeng-
ið deyfir sársauka og óþægindi. Sjúkdóm-
urinn er sá sami eftir sem áður, en hann
er ekki eins erfiður, ekki eins kvalafullur.
Það er sjúkdómsviðvörunin, sem hefur
verið deyfð. Og raunin er oft sú, að sjúk-
dómurinn verður erfiðari en fyrr.
Þessi atburður gerðist fyrir 64 árum:
Jarðskjálftinn I San Francisco
að var snemma morguns þann 18. apríl 1906, sem öll San Francisco-
borg skalf vegna mikilla jarðskjálfta. Við það gusu upp eldar viðs
vegar um borgina, sem lögðu nákvæmlega 28.188 byggingar í rúst.
Það má kallast guðs náð, að ekki létust fleiri en 452 menn í þessum
hamförum.
Borgin var aðeins 53 ára gömul, þegar þessi atþurður gerðist, en þá þegar
töldust til hennar um 400 þúsund byggingar.
Flestir borgarbúar sváfu vært, þegar fyrri jarðskjálftinn kom, enda var klukk-
an ekki nema 16 mínútur yfir 5. Já, þeir voru reyndar aðeins tveir jarðskjálfta-
kippirnir, og sá fyrri var afar harður og stóð yfir í tvær mínútur. Borgarbúar
þustu á náttklæðunum út á göturnar skelfingu lostnir. Við þeim þlasti mikil
eyðilegging. Elztu og veikbyggðustu húsin voru vitaskuld rústir einar og einnig
mikið af nýreistum múrsteinshúsum. Og nýja ráðhúsið borgarbúa var orðin
ólöguleg hrúga. Það hafði víst kostað um 7 milljónir dollara að byggja húsið.
Fimm minútum eftir fyrri kippinn kom sá síðari. En þótt hann væri ekki nærri
eins harður, lauk hann þó því verki fyrirrennara síns að eyðileggja mörg af
stærstu hótelum borgarinnar.
Skömmu siðar gusu svo eldar upp og héldu áfram eyðileggingunni. Engin
tök voru á því að slökkva eldana, vegna þess að flestar vatnsleiðslur borgar-
innar höfðu eyðilagzt í jarðskjálftunum. Af þeim sökum geisuðu í þrjá daga
miklir eldar í San Francisco. Á laugardagsmorgni var lítið eftir til að brenna,
og eldarnir dóu út. Og nú fyrst blasti eyðileggingin raunverulega við, það
vár hræðilegt tóm í San Francisco.
Nokkrum dögum síðar tók fólk að streyma inn í borgina með tjöld, peninga,
mat og lyf. Á þriðjudaginn kom fyrsta hjálparsveitin með 1500 suðuáhöld,
daginn eftir fóru svo hjálparsveiti,rnar að streyma að fyrir alvöru til aðstoðar
hinum hrjáðu borgarbúum. Fyrstu tíu dagana eftir hamfarirnar var alls úthlutað
583