Æskan - 01.11.1970, Qupperneq 40
Benedikt Andrésson
og sjóskrímslið
Benedikt hét maður; hann var Andrésson, sonur Andr-
ésar Helgasonar frá Héðinshöfða á Tjörnesi. —
Benedikt var bróðir Hólmfríðar á Hóli, konu Helga
Þorkelssonar, Guðrúnar frá Glerá í Kræklinga-
hlíð, konu Kristjáns Ásmundssonar og þeirra
fleiri systkina.
Benedikt var tvö ár á Hóli, 1868 og 1869. — Hann var
þá um hálfþrítugt að aldri, harðger maður og röskur. Var
hann í húsmennsku á Hóli hjá Helga mági sínum, sem
þá var nýfluttur (vorið 1866) á nesið framan úr Kinn.
Benedikt var þessi haust við sjóróðra inn á Bakka, en
þaðan var þá sjósókn mikil.
Þau Helgi og Hólmfríður fóru eitt sinn — annaðhvort
haustið — kaupstaðarferð til Húsavíkur. Þau urðu siðbúin
af Húsavik og komu ekki fyrr en myrkt var orðið út á
Bakka. Hest höfðu þau undir áburði, er ógreiddi för þeirra.
Hólmfríði var krankt, og vildi fólk á Bakka, að hún yrði
þar um nóttina, en hún vildi fyrir hvern mun komast heim.
Benedikt bróðir hennar bauðst þá til að fylgja þeim út eftir,
og var það ráð tekið. Hann fékk sér hross lánað á Bakka;
það var brún hryssa, er kölluð var Bakka-Brúnka, ágætis
hross.
Ekki segir af ferðum þeirra fyrr en þau komu út á
Hól. Þá vildi fólk Benedikts fyrir hvern mun að hann yrði
heima þar um nóttina. Þess var þó enginn kostur; vildi
hann komast inn eftir til þess að missa ekki af róðri næsta
dag. — Benedikt fór frá Hóli um eða eftir háttatima. Hann
fór sem leið liggur inn með bænum suður I Hallbjarnar-
etaði, en þar ofan í fjörurnar. Það er alllangur vegur frá
Hallbjarnarstaðakambi inn að Köldukvisl, en þar þrjóta
fjörurnar. Mun láta nærri að þær séu klukkutíma klyfjaferð.
Ytri Tungufjörur eru nyrztar, frá Hallbjarnarstaðaá að
Skeifá, þá Hringversfjörur, frá Skeifá að Rekaá, og innstar
Syðri Tungu- og Tungugerðisfjörur frá Rekaá að Köldu-
kvísl.
Ytri-Tungufjörur eru mestallar fremur ógreiðar umferð-
MARGT BÝR í SJÓNUM
588
hfít í A í(