Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1970, Page 92

Æskan - 01.11.1970, Page 92
Kafbáturinn, sem O’Toole berst við að sökkva. Litlu sjóflugvélinni stjórnar hann sjálfur. OToole og stríð Murphys Mesta og dýrasta brezka kvikmyndin, sem gerð er þetta árið, er Murphy’s War (Stríð Murphys). Peter O’Toole leikur að- allilutverkið, sjómann i kaupskipaflotan- um, en skip hans verður fyrir tundur- skeyti kafbáts síðustu daga stríðsins. Kaf- háturinn felur sig á leyndum stað i Suður- Ameriku. O’Toole leitar hann uppi og heyr sitt eigið stríð við hann rekinn áfram af óslökkvandi liefndarþorsta. Aðal kven- hlutverkið leikur Sian Phillips, sem er eiginkona O’Tooles. Brezkur blaðamaður fékk pð fara með starfsfólkinu til Venezúela, þar sem taka átti myndina á þremur mánuðum við ósa Orinoco fljótsins, en umhverfis ósana cru sjö þúsund fermilur af fenjum. Hér fer ó eftir nokkuð af því, sem hann liafði að segja um heimsóknina: Peter O’Toole sem sjómaðurinn Murphy. „Ferðahæklingarnir segja manni, að Orinoco-áin sé áttunda lengsta á í heimi. 2500 km iöng hlykkjast hún um frum- skóga Venezúcla. Hún er jafnframt óhrein- asta áin — en ferðabæklingarnir gleyma að geta jiess. O’Toole hallar sér þungiyndislega fram á borðstokkinn og starir fölbláum augum niður í gulleitt, leðjuborið árvatnið — tveggja daga skeggbroddar geta ekki faliö óánægjuna í svipnum. „Skítur 1“ segir hann og kveður jafnvel enn sterkar að orði. Orðin koma eins og sprenging. „Ekkert annað en skitur. Þetta flæðir út i sjó á 80 kílómetra svæði. Eng- um manni með heila geðsmuni dytti í hug að synda í þessum viðbjóði 1“ Jú, O’Toole á eftir að svamla um í þessu stríði sinu við kafbátinn. Þarna blandast allt saman, olía frá olíuhreinsunarstöðv- um, skolp úr klóökum ]>orpanna, óþekktir sýklar, sem þrifast á þessu öllu, að ógleyrtidum hinum grimmu piranha-fisk- um (sem eru kjötætur og lireinsa allt hold af bcinum manns á fáeinum mínút- um), krókódilum og sex þumlunga löng- um vatnasnákum, sem eru baneitraðir og ekkert móteitur til gegn ennþá ... og O’Toole þarf ekki lengi að svipast um til að sjá önnur ókennanleg kvikindi skríða um brúna og slepjuga árbakkana. Það er því varla hægt að ætlast til, að liann leiki við hvern sinn fingur. Kafbáturinn með áhöfn er fenginn að iáni hjá sjóher Venezúela. ^Hann hefur áður sézt i kvikmyndinni Operation Petti- coat (Bleiki kafbáturinn, sem hér var sýnd fyrir nokkrum árum), og var hann þá málaður hleikur. Hann á að skjóta ósviknu tundurskeyti að ósviknu kaupskipi — gömlum dalli, sem Peter Yates leikstjóri keypti í skipakirkjugarði fyrir 8000 sterl- ingspund (um 1.7 millj. ísl. kr.). „Þetta er sjálfsagt eina skipið, sem þeir fá nokkru sinni að sökkva," sagði Yates. „Flotaforinginn er líka liiminlifandi!“ Nú heyrast skyndilega hróp frá hakk- anum. Einn aðstoðarmannanna liefur dottið i ána. Honum er hjargað upp úr leðjunni hóstandi og hrækjandi og laf- liræddum og þotið með liann til læknis- ins, sem alltaf er ineð í förinni. Læknirinn segir að rannsókninni lokinni, að sjúkl- ingurinn muni lifa. Hann var heppinn. — Ekkert beit hann.“ Mynd þessi á að vera ákaflega spenn- andi, enda er ekkert sparað, hvorki pen- ingar né erfiði. Lee Marvin sló í gegn sem söngvari, er hann var hátt. á fimmtugsaldri, í myndinni Paint your Wagon. Því skyldu þeir ekki reyna? Frá v.: Stewart, Fonda og Kelly. Stewart og Fonda Henry Fonda og James Stewart hafa verið vinir í meira en 30 ár. Þeir voru bekkjarbræður i Princeton fyrir 35 árum, en er báðir höfðu afráðið að snúa sér að kvikmyndaleik, bjuggu þeir um liríð sam- an i Beverly HiIIs i Hollywood. „Við áttum heima rétt hjá Gretu Garbo,“ segir Stewart, „og bárum óskaplcga mikla virðingu fyrir henni. Við áttum það til að bíða klukkustundum saman til þess eins að sjá hana ganga inn eða út úr húsi sinu.“ En skömmu síðar dró Garbo sig í hlé, en Stewart og Fonda urðu háðir kvikmyndastjörnur. Nýlega léku þeir saman i gamansamri kúrekamynd, The Cheyenne Social Cluh, og leikstjórinn, Gene Kelly, ákvað að fá ])á til að syngja lag, sem leikið væri í upphafi myndarinnar, meðan talið er upp starfsfólk við kvikmyndargerðina. Lagið „Rollin’ Stone“ var samið sérstaklega fyr- ir þá, og síðan fór upptakan fram. Er Fonda var spurður eftir á, hvernig hefði gengið, svaraði liann: „Ég geri ekki ráð fyrir því, að Sinatra sé i hættu." Leikstjórinn, Gene Kelly, var Stewart og Fonda innan handar við æfingar og upptöku, enda liafa þeir ekki sungið op- inberlega síðan eitt sinn á skólaskemmt- un i Princeton fyrir 35 árum. 640
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.