Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1917, Side 32

Skírnir - 01.08.1917, Side 32
254 Einsamall á Kaldadal. [Skirnir' hest ofan í síkin þar. En Egill lét sig ekki. Og þegar tröllin voru búin að fá átján hesta, gáfust þau upp.j Svo sem hálfrar stundar ferð sunnar eru Brunnar. Þar er hagi miklu betri, svo að eg gat ekki stilt mig unr að lofa hestunum að gripa þar niður. Sjálfur varð eg hvildinni feginn til að fá næði til að virða fyrir mér Skjaldbreið, sem nú blasti við mér, baðaður í síðdegissól- skininu. Einhver sögn er til um það, að Jónas Hall- grimsson hafi legið úti tjaldlaus í Brunnum og verið búinn að týna lestinni. Þar i döggvotu grasinu á hann að hafa ort þetta fræga og fagra kvæði. Þetta minnir mig á aðra sögn sama eðlis. A melunum fyrir ofan Víðimýri i Skagafirði, þar sem v.egurinn liggur austur af Stóra- Vatnsskarði, er á einum stað há þúfa. Þar á Hannes Hafstein að hafa staðið og litið þaðan yfir Skagafjörðinn,, þegar hann orti liið gull-fallega kvæði »Af Vatnsskarði«. Eg fór eitt sinn upp á þessa þúfu, til þess að reyna að sjá Skagafjörðinn i þeim ljóma, sem Hannes lýsir. Mér tókst það ekki. En aftur sá eg þaðan annað, sem ekki varð séð frá veginum. Skamt suður frá þúfunni sáust ofurlitlar tóftir, hálf-signar í jörð, og gamalt túnstæði í kring, sem nú var komið í órækt. Þetta eyðibýli heitir Víðimýrarsel. Þar stóðu síðast beitarhús. í þeim beitar- húsum lá Bólu-Hjálmar banaleguna og dó þar. — Hannes- liefir sagt mér sjálfur, að kvæði sitt sé ort um vetur suð- ur í Kaupmannahöfn. Spölkorn suður af Brunnum eru H a 11 b j a r n a r- - vörður, ofurlitil vörðutyppi á grýttum holtum, og þar ligg* ur vegurinn norður á Uxahryggi. Sögnin, sem tengd er við þessar vörður, er svo stórfeld og áhrifamikil, að eg get ekki stilt mig um að setja hana hér, eins og hún er sögð í Landnámu: >Snæbjörn son Eyvindar austmanns, bróðir Helga magra, nam land milli Mjóvafjarðar ok Langadals, ok bjó í Vatnsfirði; hans son var Hólmsteinn, faðir Snæbjarnar galta; móðir Snæbjarnar var Kjalvör, ok váru þeir Tungu- Oddr systrasynir. Snæbjörn var fóstraðr í Þingnesi með’
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.