Skírnir - 01.06.1919, Blaðsíða 21
SkirnírJ
Dr. Björn Bjarnason.
115
þó honum væri það feginsverk að starfa að íslenzku orða-
bókinni, enda var hann ágætlega til þess fallinn. Og hann
var byrjaður á því verki með lifandi áhuga. Sá sem
tekið hefir við því, sem hann hafði lokið, segir mér, að'
það sé mesta furða, hve miklu hann hafi afkastað á svo
stuttum tíma. Það þótti honum raunar að því að orðtína
bækur, að hugurinn var þar bundinn við bókstafinn og
mátti lítt tefjast við að gefa gaum að andanum, og segir
magister Sigurður Guðmundsson mér, að hann hafi kvartað
um það, en eg er viss um, að hann hefði jafnað þann
halla, er hann fór aftur að vinna úr safninu, skýra orðin
og þýða, vega þau og finna jafngildi þeirra, því að orð'
voru honum eins konar glimubrögð hugsunarinnar, að finna
stutt og mjúkt orð var eins og að koma snöggu og mjúku
bragði á. Löng orð og luraleg voru honum jafn hvimleið
og bolabrögð. Hann unni svo mjög fögrum orðum, að
stundum var um of. Stíll bans gat orðið eins konar »feg-
urðarglima« og mist við það hitann. Gætir þess helzt á
stöku stað í »íþróttum fornmanna«. En yfirleitt ritaði
hann listavel. Honum þótti gaman að þýða af útlendum
málum það sem erfitt var. Það var fimleiksraun, reyndi
á rnjúkleik íslenzkunnar. Þýðingar hans eru yndislega
þýðar, og þar sem hann myndar nýyrði, hattar hvergi
fyrir. Það úir og grúir af nýyrðum í »Uraníu«, en eg
spái því, að fáir finni þau nema víðlesnir menn og at-
hugulir.
Hið síðasta, er dr. Björn ritaði, var um n ý y r ð i r
fyrirlestur sem hann flutti í Verkfræðingafélagi íslands
30. okt. s.l. Þar var um það að ræða, hvernig ætti að
auðga tungu vora af orðum yfir nýja hluti, handtök og
hugtök, svo að hún væri vaxin kröfum tímans og næði
að þroskast eftir eðlislögum sínum, hrein og fögur, sterk.
og mjúk. Þetta er hið mesta menningaratriði og brýa
þörf á að taka það til rækilegrar meðferðar og benda á.
beztu leiðirnar. Það hefir dr. Björn gert. Fyrirlesturinn
er meistaraverk. Þarna var efni, sem hann hafði hugsað-
frá rótum, gert sér innlíft unz það streymdi fram eins og-
8*