Skírnir - 01.06.1919, Blaðsíða 44
vl3S Sir George Webte Dasent. [Skírnir
«rðtæk,ium og orðalagi annars mfUsins og taka upp í þeirra
stað orðtæki og orðalag hins; heldur. í þvi er hún fólgin,
að finna í sinni eigin tungu orð og orðtæki, sem bezt og
skýrast svari til þeirra í tungunni, sem hann þýðir úr, og
Jíannig láta málið verða eins nákvæma eftirmynd og auðið
er af myndum og hugsunum hins málsins. Á þann hátt
verður þýðingin ánægjuverk, en hún krefur þá lika bæði
tíma og erfiði*. Með þessu móti varð Njálu þýðingin líka
fyrirmynd. Það gefur að skilja, að eigi má þýða fornrit eins
og sögurnar okkar á sama mál og með sama orðalagi eins
-og skáldsögu síðustu tima. Það verður að gefa þeim annan
blæ og annað snið, velja eldri orð, en þó má ekki gera
málið of fornt eða torskilið nútíðarlesendum. Dasent sá
þetta glögt, og leitaðist við að fylgja því. I þýðingunni
á. Snorra Eddu fór hann sjálfsagt nokkuð langt í því að
nota gömul og úrelt orð; Carl Siive fann að því, og lét
Dasent sér það að kenningu verða, þvi að í seinni þýð-
ingum hans gætir þessa minna. Stundum notar hann
skozk orð og fer venjulega vel á því. I þýðingum hans
er einkennilegur stíll, málið hreint, kjarnyrt, hispurslaust
og blátt áfram. Það liggur nærri að bera þær saman við
þýðingar þeirra William Morris' og Eiriks Magnússonar.
Ekki verður því neitað, að þeim hafi að mörgu leyti tekist
mjög vel, en fornyrðin hjá þeim eru of mörg og tilgerðin
keyrir tiðum fram úr hófi; ef einhver færi að rita þannig
á íslenzku, mundu menn ekki hika við að kalla það »torf«.
í þýðingum þeirra Guðbr. Vigfússonar og F. Y. Powells
vill vandvirknin einatt fara út um þúfur; má og merkja
þar nokkra tilgerð og gerræði; þeir voru ekki að sama skapi
gætnir og þeir voru fljótvirkir. Dasent var brautryðjand-
inn, og eg efast um, að þeir sem fetuðu í hans fótspor,
hafi verulega tekið honum fram í nokkru.
Það sem einna erfiðast er að þýða á útlenda tungu
eru kvæðiu eða vísurnar, með öðrum orðum skáldamálið;
J>að er ekki auðvelt að þýða kenningarnar svo að þær
njóti sín og um leið gera vísuua skiljanlega lesendunum.
Hér er um ýmsa vegi að velja: annaðhvort að þýða vís-