Skírnir - 01.06.1919, Side 35
'Skirnir] Sir George Webbe Daeent. 129
Svo fór um sjóferð þá, eu frásögnin er vel skrifuð og
-8kemtileg.
Enn er ein persóna, sem kemur fyrir í þessari ferða-
sögu, sem sé Mr. Jonson frá Kaupmannahöfn. Það er auð-
vitað dr. Grímur Thomsen. Segir höfundurinn um hann,
að hann sé einn að þeim fjörugustu og gáfuðustu mönn-
■um, sem hann þekki, i rauninni mjög vingjarnlegur og
raundi leggja talsvertí sölurnar til að gera mönnum greiða,
■en hann er gæddur þeirri gáfu að geta fundið bresti
raanna, og kemur svo óspart við kaunin á þeim. Segir
höfundur frá þvi, hvernig hann stríddi öllum þessum ferða-
löngum, einkum varð Mr. Digwell illa úti, þvi að Mr.
-Jonson fór að tala um dýrindisrétti við hann þar til Mr.
Digwell rak upp angistaróp, en Mr. Jonson horfði á hann
sem Mefistófeles sigrihrósandi. Má víst um þetta viðhafa
ítalska máltækið Se non é vero, é ben trovato (Ef það er
ekki satt, þá er þó vel tilfundið).
Dasent og samferðamenn hans lögðu i þetta skifti leið
sína úr Reykjavík yfir Þingvelli og Geysi, en þaðan fóru
þeir fyrir norðan Bjarnafell, Hellisskarð, yfir Hlöðuvelli
og niður i Brunna; þótti þeim landið þar æði eyðilegt, en
þó á sinn hátt tilkomumikið; líkir ferðaritarinn öræfunum
þeim við lýsingu Miltons á heimkynnum Satans eftir fall
hans') Þeir komu i Reykholt og héldu þaðan til Kal-
manstungu. Gengu þeir á Eíríksjökul og tók fjallgangan
^3 stundir; ennfremur sáu þeir Surtshellir. Héldu svo
norður yfir heiðar til Hrútafjarðar, þaðan vestur í Dali,
oftir Skógarströndinni til Helgafells; þá til Óíafsvikur og
yfir að Stapa, en siðan suður um Mýrar og Borgarfjörð,
yfir Svínaskarð til Reykjavíkur. Tel eg víst, að Dasent
hafi ráðið ferðinni, og sérstaklega valið þessa leið til að
sjá Bveitir þær, þar sem margar af merkustu sögunum
gerðust.*) Eftir því sem höfundur ferðalýsingarinnar seg-
‘) Sjá Paradísarmissir, Kmh. 1828, bls. 3: Þar var að sjá | í
■öllnm áttnm | dapra dýblissu o. s. frv.
a) William Morris fór hér um bil sömu leið þegar bann ferðaðist á
Islandi arið 1871. A seinni ferð sinni um ísland 1873 fór bann norður
3