Skírnir - 01.06.1919, Page 93
^Skirnir]
Sannfræði islenskra sagna.
187
það ætlun manna, að hún standi á þeim stað, þar sem
hið forna og i'ræga hof stóð. Rjett við eru 3 miklir hólar
•eða haugar; þeir standa á náttúrlegum ás. Þetta eru forn-
mannahaugar, sem reistir hafa verið á ásnum. Hefur
■verið grafið í þá og þar fundist menjar grafanna með
.ýmsu móti. Likin voru brend og fundust leifarnar, sem
"vanalegt er, i krukkum, og þar með ýmislegir munir eða
'hlutir af munum úr gulli og öðru.
Haugarnir liggja frá austri til vesturs og hafa verið
"nefndir Óðinshaugur, Freyshaugur og Þórshaugur, en þessi
nöfn eru auðvitað handahófstilbúníngur frá síðari öldum.
Eftir áliti fornfræðínga er aldursmunur nokkur á þess-
nm haugum, hinn austasti er talinn elstur og frá því um
500 hið siðasta, sá i miðið kemur þar naast og er nokkuð
.ýngri, svo sem 20 -30 árum; vngstur er só vestasti og
talinn frá því um 575—600, eða 2—3 mannsöldrum ýngri
en hinn austasti. Það eru gripirnir og munirnir, sem
fundist liafa, er þessum tímaakvæðum ráða.
Nú kennir Ýnglíngatal til sögunnar. í konúngatalinu
Þar koma meðal annars þ'ssir konúngar: Aunn—Egill—
'Ottarr—Aðils (eldri myud Að-gísl). Þess ber að gæta í
fyrsta lagi, að þessi nöfn byrja öll á raddstaf, þau »standa
1 51jóðstöfum«, og kemur það heim við nafnamyndun og
heiti á hinum svokölluðu þjóðflutníngatímum, en þuð er
•einmjtt sami timinn sem haugarnir eru frá.
I hinu fornenska kvæði, er Bjólfur (Beówulf) nefnist,
■et' talað um 3 konúnga (feðga): Ongenþeow (Auganþér o:
Angantýr) — Ohtere (o: Óttarr) — Eáðgils (o: Aðils), það
eru eflaust sömu konúngarnir og í kvæðinu, nema hvað
Ongenþeow stendur í stað Egils, hvernig sem á því stend-
Ur- Ongenþeow er feldur af Hugleiki konúngi, en hann
er allur sá sami og sá Hugleikur (Chochilaicus), er fór
herferð til Fiislands og fjell þar eitthvert árið milli 515 og
-520; Ongenþeow var gamall, þegar hann var drepinn og
ntætti þvi setja dauða hans um 500 eða 510 (ekki löngu
fyrir fall Ilugleiks). Óttarr rjeð ríki ekki ýkja lengi og
hefur tæplega lifað lengur en til 530—40. Aðils hefur