Skírnir - 01.12.1920, Qupperneq 9
Skírnir]
Jón Jónsson Aðils.
231
brátt í kynni við Jörgensen sjálfan,. og fekk Jörgensen
miklar mætur á honum. Vann Jón ýmislegt í safninu
fyrir Jörgensen, skrifaði upp fyrir hann, og einnig útveg-
aði Jörgensen Jóni vinnu við það að gera eftirrit af skjöl-
um úr safninu handa öðrum. Var og að því komið, að
Jörgensen hygðist að gera Jón að föstum aðstoðarmanni,
undirskjalaverði, í safninu, en það fórst þó fyrir, og harm-
aði Jón það síðan; mun þetta nokkuð hafa stafað af völd-
um annars manns, að því er Jón hefir sjálfur sagt þeim,
er þetta ritar.
Hitt annað, sem miklu mun hafa ráðið um líf og. líf-
stefnu Jóns, var það, að hann kynntist alþýðuskólum Dana,
sem kallaðir eru lýðháskólar, og stefnu þeirri, sem kennd
er við N. F. S. Grundtvig.
Þetta varð með þeim atburðum, sem nú skal lýst, og
dregur oft lítið til mikils.
Jón var sökum söngraddar sinnar og annarra þeirra
kosta, er góðir þykja í samkvæmum, mjög hafður
í hávegum; þókti jafnan gleðiauki að honum, hvarvetna
þess er sainlandar hans eða aðrir honum kunnugir fengu
hann í hóp sinn eða gildi. Var hann nákunnugur Olafi
Hjaltasyni Thorberg, bróðursyni og uppeldissyni Bergs
landshöfðingja Thorbergs. Við þenna kunningsskap kynnt-
ist hann ekkju Bergs landshöfðingja Thorbergs, er þá átti
heima í Kaupmannahöfn, og var stundum gestur á heimili
hennar. Þar kynntist Jón ekkju skáldsins Christians Mol-
bechs; mun hún þegar hafa fengið miklar mætur á Jóni sök-
um söngs hans og annarrar háttprýði. Var hann í boð-
■um hjá henni, og þar kynntist hann þeim manni, er Poul
Hansen hét, en hann var tengdasonur Ernsts Triers, er
var forstöðumaður lýðháskólans i Vallekilde, nafnkenndur
maður með Dönum, einn af aðalforkólfum þessarar fræðslu-
stefnu, lýðháskólastefnunnar. Ernst Trier var og stór-
imikill rausnarmaður og hámenntaður; gæddur var hann
ágætum kennarahæfileikum og mælskumaður með afbrigð-
tUm. Poul Hansen kom Jóni í kynni við Ernst Trier og
gazt Trier, sem öðrum, mjög vel að Jóni; bauð hann Jóni