Skírnir - 01.12.1920, Qupperneq 13
Skírnir]
Jón Jónsson Aðils.
235
«n það voru rannsóknir urn verzlunarsögu landsins, eink-
um á 18. öld. Bar raun skjótt vitni uru þetta, því að þegar
næsta ár, árið 1897, birtist ritgerð eftir Jón í Historisk
Tidskrift, »Den danske regering og den islandske mono-
polhandel, nœrmest i det 18. hrhundrede«, þ. e. stjórn
Dana og íslenzka einokunarverzlunin, einkum á 18.
öld. Er þetta yfirlit yfir sögu einokunnarverzlunarinn-
ur frá upphafi til enda, en þó einkannlega á 18. öld,
3vo sem fyrirsögnin segir til um. Það var og er jafnvel
enn svo litið á af almenningi hér á landi, að þessi verzl-
unaraðferð, einokunin, hafi verið tekin upp hér á landi, —
jafnvel ekki verið notuð annarstaðar en hér — í því
skyni að féfletta íslendinga en auðga að sama skapi hina
dönsku stjórn eða þá menn eða félög, sem verzlunarleyfi
fengu. Höfundurinn sýnir hér fram á það, sem raunar öllum
uienntuðum raönnum hefði átt að vera kunnugt, að þessi
skoðun um einokunarverzlunaraðferðina var almennt ráð-
undi í Norðurálfu um þessar mundir; hinir helztu þjóð-
hagsfræðingar þeirra tíma og fjármálamenn töldu þessa
verzlunarstefnu, einokunina, miklu hyggilegri og heppilegri
Þjóðunum en frjálsa verzlun eða óbundna. En aðalkostur
ritgerðarinnar er þó sá, að höfundurinn sýnir fram á
Það með rökum, að það var laust við það, að stjórn Dana
vildi með þessari verzlunarstefnu rýja landsmenn; hann
sannar meira að segja, að Danastjórn hafi jafnan öllu
fremur dregið taum íslendinga gagnvart einokunarfélög-
unum og leitað að sinna kröfum þeirra um umbætur í
Þessa átt, að svo miklu leyti sem unnt var og samrýmt
varð þessari verzlunarstefnu. Höfundurinn sýnir enn frem-
m’> að það var mjög svo ýmsum hinutn helztu mönnum
Islendinga sjálfia að kenna, að svo torvelt var að leysa
verzlunarhöftin; en þeir menn börðu því við, að verzlun
myndi leggjast niður á landi hér og landsmenn verða
hungurmorða, ef verzlunin yrði gerð óbundin. Það myndi
jafnvel sennilegast, að verzlunin hefði verið gefin alfrjáls
1787, ef einn af landsins mætustu sonum hefði ekki stað-