Skírnir - 01.12.1920, Side 43
Skírnir]
Lourdes
265
óðara vatni. Bernadette drakk af því úr lófa sínum og
þvoði svo á sér andlitið úr þvi. En þegar hún kom aftur
til fólksins var hún öll kámug í framan, því aur hafði
verið í vatninu og kölluðu menn þá hástöfum: »Bernadette
er orðin vitskert!* Bernadette tók sjálf ekki eftir neinu,
það lék himneskt bros um varir hennar og sjálf sagði
bún frá því, að hvítklædda konan hefði skipað sér að
drekka og þvo sér úr einhverri uppsprettu, sem hún ekk-
ert vissi hvar var. Hún hefði því ætlað að fara ofan að
á, en þá hefði konan kallað á sig og sagt sér, að upp-
sprettan væri í fjallshlíðinni. Hún sagðist svo hafa farið
þangað, sem konan benti henni, en þar var ekkert vatn
og því hefði hún reynt að grafa eftir því með nöglunum
— og sjá vatnið hefði komið. Jarðvegurinn umhverfis var
rannsakaður, en hvergi fanst vatn nema á þessurn eina
bletti, en vatnið vall þarna upp og myndaði fljótt lítinn
læk og hefir aldrei þornað síðan. Það telst svo til að þessi
uppspretta gefi 122,000 lítra á sólarhringnum og fyllir hún nú
9 baðlaugar og 15 vatnsleiðslur með krönum, er koma út
úr gjábakkanum, og er þetta það lífsins vatn, sem að sögn
getur læknað alla sjúkdóma.
Tveimur dögum siðar sagði hvítklædda konan henni,
að hún ætti að fara og segja prestunum að byggja kirkju
á þessum stað og að hingað ætti trúað fólk oft að ganga í
8krúðgöngum. 4. marz var siðastur þessara 15 daga, er
úvítklædda konan hafði tiltekið í fyrstu, og bjuggust menn
því við einhverju merkilegu þann dag. En Bernadette
trúði því fastlega, að hún ætti eftir að sjá hana, því hún
sagði, að hún hefði ekki kvatt sig. Litla stúlkan fór nú
samt oft til einskis í Massabieille-hellinn, en 25. marz,
vitjunardag Maríu meyjar, birtist konan henni aftur og
dirfðist þá Bernadette að spyrja hana hver hún væri.
Hún sagði þá: »Je suis 1’ Immaculeé Conception*, það er
að segja, hún gaf í skyn, að hún væri María mey.
Bernadette sá hana tvisvar enn, þ. 7. apríl og loks-
ins 16. júlí sama ár, og var það 18. og síðasta vitrunin.
Bernadette lifði í 20 ár eftir þetta, án þess að neitt