Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1910, Síða 79
ALMANAK 1910.
51
áöur far ö þarna út í landskoðun, sem fyr er frá sagt.
Þau lögöu af staö næsta morgun. Fertun gekk stór-
slysalaust, þó margt væri til ama: hiti illþolandi og
fluguvargur mikill, og börnin meira og minna veik.
Nam Halldór staöar og tók sér bólfestu skamt frá
Lundar, á lan.h sem nú er eign herra Kristjáns Fjeld-
steds i Winnipeg. Iiaföi Halldór keypt sér 2 kýr, og
svo sem mánaðarforöa af matvöru. '1 ók hann nú aö
vinna að heyskap, og átti í vök aö verjast fyrir sléttu-
eldum. Samt aflaöi hann svo mikilla heyja er hann
þurfti, og vel þaö, og aö heyskapnum loknum tók hann
að búa sig undir aö byggja íveruhús, þvi þau höföu öll
bú ð í tjaldi um sumarið. Bygði hann um haustið hús
til bráðabyrgða í félagi viö Hinrik Jónsson, ísfirðing.
Hafði Hinr.k numið land það, er þeir bjuggu á, því
hann haföi k miö ári fyr vestur um haf. Voriö eftir
nam Halldór land í sömu sect.on, og reisti þar íveruhús
16 fet aö lengd og 12 á breidd, og fjós fyrir 12 naut-
gripi. Nefndi hann bæ sinn á Völlum. Áriö 1891
flutti Hinrik úr bygðinni; haföi hann verið póstaf-
greiöslumaöur aö Lundar P. O., og tók Halldór viö því
starfi, og hef.r haft það á hendi síðan, og er heimli hans
síðan nefnt Lundar, eins og pósthúsiö; ætti auðvitað
eftir réttu íslenzku mál aö vera nefnt í Lundi. En hitt
nafniö er nú búiö aö vinna sér hefð hér, eins og mörg
önnur hálf-íslenzka. Árið 1896 byrjaði Halldór yerzl-
un, en rak hana aö eins 4 ár, og tók þá Jóhann sonur
hans við henni. Þau hjón n eiga 7 börn á lífi, og eru
þaui þessi: Jóhann kaupm. á Oak Point, er siðar verð-
ur getiö; Halldór kevrslumaöur í Winnipeg, giftur
Sigurveigu Siguröardóttur læknis Báröarsonar; Kristj-
án og Magnús og Maria, öll ógift heima hjá foreldr-
um sínum. Guörún er í Winnipeg óg ft. Salóme nem-
andi viö Wesley Cpllege í Winnipeg.
Þegar Halldór kom vestur til Winnipeg, var öll