Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1932, Side 43
41
sonar bónda á Jarðlangsstöðum, sem um var kveð-
ið: “Gerðarkarlinn Guðmundur gamli á Jarðlangs-
stöðum.’’ Þótti myndarbragur mikill á mörgum
þeim frændum, er svipað liefir til hinna fornu
Mýramanna. Móðir Þorbjargar var Þorbjörg Jóns-
dóttir bónda á Krossnesi, Jónssonar. En móðir
hennar var Þoribjörg Jónsdóttir bónda í Álftár-
tungukoti. En móðir Runólfs var Jóhanna Jóns-
dóttir prests á Borg, Magnússonar prests á Hösk-
uldsstöðum, Péturssonar. Voru þeir Runólfur á
Kvíslhöfða og Jón sýslumaöur Thoroddsen þre-
menningar. — Þau Magnús og Þorbjörg giftust
1903. Börn þeirra eru Þorvaldur og Sesselja Lauf-
ey. Dætur Sesselju eru Florence Lillian og Doro-
thy Beatrice, sem báðar liafa alist upp lijá móður-
foreldrum sínum. Þorbjörg var gift áður en Magnús
fékk hennar. Hennar fyrri maður var Þorvaldur
Einarsson bónda í Þverholtum, Þorvaldssonar. Þá
var hún 25 ára, er hún giftist honum, 1884. Þeirra
synir eru Einar og Jóhann. Þorvaldur lézt 1888.
Til Vesturheims fluttist Þorbjörg með sonu sína
1902. Einar er giftur Guðrúnu Sigurðardóttur frá
Hofi, en Jóhann er giftur Kristbjörgu Einarsdótt-
ur (Duluth) Jónssonar. Þau Magnús og Þorbjörg
hafa verið búsett í Árborg síðan bærinn myndað-
ist. — Það er mikið í þau hjón spunnið.
Landnemi, N.V. 6.
Hermann Þorsteinsson. — Foreldrar hans
voru Þorsteinn Kristjánsson og Valgerður Sveins-
dóttir, sem hér verður getið næst. Hermann bygði
ekki á þessu landi sínu, því það var of raklent
fyrir ábúð. En hann keypti land í Árdalsbygð (lot
15) í félagi við móður sína. Þar bjuggu þau þar
til þau höfðu unnið rétt á löndum þeim er þau
tóku til starfrækslu í flóanum; þá seldu þau ábúð-
arlandið og fluttu til Rivierton. Hermann er þar
nú búsettur. Kona hans er Margrét dóttir Sigfúsar