Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1932, Blaðsíða 126
124
DROTTINN VAKIR.
Drottinn vakir, drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og bezta móöir ,
ber hann þig í faömi sér.
Allir þótt þér aörir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, — drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Löng þá sjúkdómsleiöin verður,
lífiS hvergi vægir þér,
þrautir magnast, þrjóta kraftar,
þungt og sárt hvert sporiS er,
honum treystu, hjálpin kemur,
hann af raunum sigur ber.
Drottinn læknar, — drottin vakir
daga og nætur yfir þér.
Þegar freisting mögnuð mætir,
mælir flátt í eyra þér,
hrösun svo þig hendir, bróöir,
háÖung aö þér sækja fer,
vinir flýja. — ÆÖrast ekki,
einn er sá, er tildrög sér.
Drottinn skilur, — drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Þegar æfiröSull rennur,
rökkvar fyrir sjónum þér,
hræSstu ekki, Hel er fortjald,
hinumegin birtan er.
Höndin, sem þig hingað leiddi,
himins til þig aftur ber.
Drottinn elskar, — drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
S. Kr. P.