Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1932, Síða 54
52
hjá foreldrum sínum. Nú býr hann á landi Jó-
hanns bróður síns. I>ar heita nú Blómsturvellir.
Kona Svanbergs er Áslaug Einarsdóttir, Markús-
sonar, Jónssonar, Þórðarsonar. Sá ættbálkur er
af Langanesströndum. Móðir Áslaugar var Ingi-
björg Ögmundsdóttir bónda í Fagradal í Vopna-
firði, Runólfssonar bónda s. st., Ögmundssonar
bónda s. st., Einarssonar. Móðir Ingibjargar var
Sólína Ásmundsdóttir bónda á Vindfelli í Vopna-
firði. — Þau Svanberg og Áslaug giftu sig 1913.
Börn þeirra eru: 1. Einar; 2. Klara; 3. Svanlaug;
4. Sigfús; 5. Jónína; 6. Victor. Son mistu þau
1930; liann hét Guðmundur, var mesti efnispiltur
19 ára að aldri. Svanberg hefir verið talinn einn
efnaðasti bóndi í Nýja íslandi. Hann er bráðdug-
legur, ötull og áræðinn til framkvæmda.
Landnemi, N.V. 14.
Jóhann Sigfússon. — Hann er bróðir Svan-
bergs. Honum hefir hann leigt landið og er þar
til heimilis. Hann er hinn bezti drengur, skýrleg-
ur og greinargóður. Að búi bróður síns vinnur
hann stöðugt. Er þar og bróðurlag hið bezta.
Landnemi, N.E. 14.
Eggert Stefánsson. — Foreldrar hans voru
Stefán Tómasson og Vigdís Magnúsdóttir, sem
bjuggu að Egilsá í Skagafirði. Kona hans er Mar-
grét Halldórsdóttir, systir Páls á Geysir. Þau
fluttu til Vesturheims 1885, en 12 árum síðar tóku
þau þetta land og bjuggu þar 13 ár. Þaðan fluttu
þau vestur að Manitobavatni, þar sem synir þeirra
tóku lönd við Dog Lake.
Landnemi, S.E. 15.
Jón Dagsson. — Faðir lians var Dagur hrepp-
stjóri á Karlsstöðum í Ólafsfirði, Bjarnason bónda