Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1932, Side 73
71
mundsson bóndi á Vaði í Skriðdal. Þeir feðgar
fluttust með fyrsta útflutningastraumnum af ís-
landi og settust fyrst að í Mikley. Kona Jóns var
Halldóra Guðrún Guðmundsdóttir. Þau settust
hér að meðal fyrstu landnema Geysisbygðar. Pögru-
vellir heitir landnámsbýli þeirra, sem geymir kærar
minningar frumbyggjanna. Þau hjón eru bæði
dáin fyrir mörgum árum síðan. Börn þeirra hér
talin: 1. Guðmundur, sem getið er í landnematali
Árdals- og Framnesbygða; 2. Guðrún, ekkja Bene-
dikts landnema í Árdalsbygð (N.E. 25). Hún er bú-
sett vestur í Albertafylki; Jón og Reimar eru þar
synir þeirra; 3. Anna Sigríður, kona Gísla í Hlé-
skógum; 4. Bergur; 5. Kristján. Þeir eru báðir land-
nemar í suðaustanverðu Víðirliéraði.
Landnemi, Lot V.V. 21.
Bjarni Guðmundsson. — Hann var faðir Jóns
á Fögruvöllum. Hann var þá ekkjumaður, er hann
kom til þessa lands, orðinn háaldraður og lifði
ekki lengi eftir það. Landnámsjörð hans samein-
aðist Fögruvöllum.
Guðmundur Sigvaldason. — Hann hefir keypt
mikinn hluta af hinum sameinuðu landnámsjörð-
um þeirra Fögruvallafeðga og býr nú á Fögruvöll-
um. Hann er sonur Sigvalda í Framnesi, sem áð-
ur er getið. Hann er einn hinn framkvæmdamesti
meðal hinna yngri bænda bygðarinnar. Hann hef-
ir komið sér upp mjög vönduðu fjósi með heylofti
yfir. Og nú hefir hann keypt Þingvelli, landnáms-
jörð Jóns Sveinssonar, sem er ein með beztu jörð-
um bygðarinnar. — Kona Guðmundar er Steinunn
Ólafía Guðmundsdóttir, Ólafssonar, ættuð af Skeið-
um. Móðir hennar var Pálína Helgadóttir gull-
smiðs, er var búandi í Grímsnesi. Steinunn flutti
af íslandi 1912. En 2. marz 1915 giftist hún Guð-
mundi. Hún er ágæt húsfreyja, er lætur lítið á
sér bera, en stundar með prýði sitt heimili. Börn