Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1932, Síða 114
112
börn hafa þau hjón eignast, sem öll eru á lífi, níu
sonu og þrjár dætur. Þær eru: 1. Sigrún; 2.
Anna; 3. Albertína. En synir þeirra eru: 1. Jó-
hannes; 2. Sigurjón; 3. Friðrik; 4. Ólafur; 5.
Hannes; 6. Gestur; 7. Sveinn; 8. Hallgrímur; 9.
Franklin. — Heimilisréttarland Friðriks Sigurðs-
sonar er í Fljótsbygð (S. V. 31-22-4E). Það hefir
hann til heyskapar.
LEIÐRÉTTINGAR.
vit5 landnámsþætti Árdals og Framnesbygtia í Nýja_íslandi.
Á bla'ðsí'ðu 41 hefir or'ðitS sú skekkja vit5 nafn Hallgríms
föður séra Gunnars eldra í Laufási, at5 hann er talinn
prestur á Brjámslæk; (sem ekki stót5 í handritinu) því
hann var aldrei prestur. Hallgrímur var bóndi á Kjarna í
Eyjafirði, sonur Jóns bónda á Naustum, Hallgrímssonar s.
st., Sigurt5ssonar, Sæmundssonar.
Á sömu bls. og sömu línu stendur: Mót5ir Gunnlaugs var
dóttir Gunnlaugs Briem. En þar átti at5 standa: Mót5ir
Geirfinns var Jóhanna Kristjana, dóttir Gunnlaugs Briem.
(Eins og stóð í handritinu).
Til nákvæmari skýringar vit5 ættfærslu þeirra Laufás-
fet5ga, skal þess getið, að móðir séra Gunnars yngra var
Þórunn dóttir séra Jóns á Hálsi í Fnjóskadal, Þorgrímsson-
ar. En móðir séra Gunnars eldra var Halldóra Þorláks-
dóttir bónda á Ásgeirsbrekku. (Það er Ásgeirsbrekkuætt.).
Á bls. 44, annari línu stendur “táprík að renna,” en á að
vera “táprík að nenna.” Á sömu bls. stendur: “en keyptu
S. E. sem átti að vera: S. V. yé.
Á bls. 50. á neðstu línu er bæjar nafnið Ljúfustaðir
ekki rétt. Hugljótsstaðir er rétta nafnið. Hugljúfustaðir
stóð í handritinu, sem ekki var heldur rétt.
Á næstu bl., er það ekki rétt að þau hjónin Eiríkur og
Ólöf hafði flutt til Vesturheims 1901, því það var 10 árum
fyr — árið 1891, sem þau fluttu vestur. Má vel vera að hér
hafi orðið ritvilla.
Á bls., 91. hefir það orðið af misgáningi, að Sólveig
Egilsdóttir er talin móðir Mattíasar Braridssonar. Hún var
móðir Jórunnar Helgadóttur, konu Þórðar á Kjarláksstöðum.
Og móðir Þórðar var Helga Egilsdóttir. En móðir Mattíasar
var Guðrún Sigurðardóttir bónda í Ferjukoti, Sigurðssonar.
Bróðir Guðrúnar var Hafliði. faðir Sigurðar á Hofi, sem getið
er í landnámssögu Geysisbygðar.
Á bls. 70 hafa mistök orðið á nafninu undir myndinni, þar
stendur Vilborg Tryggvadóttir í stað Andrea Tryggvadóttir,
eins og lesmál bendir til á sömu blaðsíðu.