Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1932, Síða 120
118
tápkona og dugnaðar. Á yngri árum sínum, var
hún, að sögn, talin falleg kona og glæsileg. Hún
var sterklega trúhneigð kona, hafði einlægar mæt-
ur á boðun kristindómsins og óskaði þess, að börn
sín og aðrir ástvinir sintu hinum frelsanda og end-
urnýjandi boðskap Drottins Jesú Krists. Á þessu
hafði hún sérstaklega orð við mig, síðasta sinni
er eg sá hana í kirkjunni í Riverton.
Áður en járnbrautin kom til Riverton, höfðu
þau Engimýrarhjón gististaö fyrir ferðamenn á
heimili sínu. Húsið var æði stórt og rúmgott. Var
þar oft mannkvæmt, fjöldi næturgesta í einu. Tóku
ferðamenn oft til þess, hve húsfreyjustörfin hefðu
farið Guðrúnu frábærlega vel úr hendi. Er og
sumum ferðamönnunum, er þá voru unglingsmenn,
enn minnisstæð sú móðurlega umhyggja, er hún
sýndi þeim, bæði að þeim gæti liðið sem bezt á
meðan þeir dveldu á heimili hennar, og þó ekki
síður hitt, að þeir gætu svo hlúð að sér á ferða-
laginu, er framundan var, að öllu væri óhætt. Á
þeim árum, framanaf að minsta kosti, var fátækt
mikil, og þeir sem voru að flytja fisk og aðra vöru
fram og aftur lengst norðan af vatni, voru ekki
æfinlega eins hlýlega búnir og skyldi. Kom þá
þessi móðurlega umhyggja húsfreyjunnar á Engi-
mýri sér býsna vel, eklti sízt þar sem ungir merni
og lítt reyndir í ferðalögum, áttu hlut að máli.
Kunnugt er það mörgum, að Bræðrasöfnuður
við íslendingafljót er elzti núlifandi söfnuður
Kirkjfélagsins. Hann mun vera stofnaður í apríl-
mánuði 1877, talsvert löngu áður en landnámið
þar á bökkum fljótsins er orðið ársgamalt. Nafn-
ið á söfnuðinum hefir stundum orðið umtalsefni,
hvers vegna að hann hlaut nafnið Bræðrasöfnuð-
ur. Uppástungumaður að því nafni var Tómas á
Engimýri. Ekki veit eg hve mörg önnur nöfn hafa
komið þar til umræðu, en uppástunga Tómasar
náði fram að ganga, og hefir söfnuðinum vegnað
vel með þetta nafn, er nú mannflesti söfnuður