Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Side 20

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Side 20
178 Sigurður Nordal: Brot. [iÐUNN áður en kvæðið kemur út. En hvers vegna get ég ekki eins þá haldið áfram að liugsa mér, að línurnar séu brot og kvæðið alt að eins ein ráðningin? Hvers vegna get ég ekki tekið línur úr gömlum kvæðum og hugsað mér, að alt hitt sé týnt eða enn ekki fullort? Billings mey ek fann beðjum á sólhvita sofa. Hver getur kosið sér fegurri og fjölræðari gátu? Uti ert þú við eyjar blár, eg er seztur að dröngum ... Er þetla ekki saga allra elskenda? En hvers vegna yrkja skáldin þá ekki brot í stað heilla kvæða? Af því brot, sem er ætlað að vera brot, yrði einskis virði. Af því kvæði er lífsheild, og það er af því lífsheildin speglast í hverjum parti sínum, sem brotin knýja mann til drauma, eins og turnrústir eða bein úr forndýrum. Meðan ein lína er til af kvæði, er sál þess ekki lýnd, þó hún eins og blaldi á skari. Það er þessi undramáttur brotanna, sem gerir mörg fornkvæði svo töfrandi, og aldrei verður skýrður með Ijósum orðum. Er það ekki meira en misskilningur, meira en lán- taka, gengur það ekki glæpi næst að laka gömut kvæði og þjóðsögur, yrkja þau upp, gera þau skýr, láta dagsljósið falla á þau, ræna þau öllum ráðning- um sínum, nema einni? Auðvitað kemur líka hegn- ingin. Fyrirmyndirnar eru eilífar, eftirlíkingarnar deyja. Hver les nú orðið Nordens Guder, en hvað hefir fallið á Yöluspá, myrka og í brotum, á þessum 10® árum? Hamingjunni sé lof fyrir vanmátt málfræð- inganna, að Völuspá verður aldrei skýrð, að þvi oftar sem ég les hana, því dýpra villist ég inn i skógarmyrkur skáldskapar og goðsagna. Sigurður Nordal.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.