Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Blaðsíða 73
IÐUNN 1
Er sócialisminn i aðsigi?
231
hús, en um 50 kr. fyrir hin minni, og var leigan þó
10—15 kr. lægri en fyrir samskonar hús í einstakra
manna eigu, enda sást þetta bezt á eftirsókninni eftir
nýju húsunum. Umsækjendur um fyrstu húsin voru
eitthvað um 1600 og var dregið um, hverjir hreppa
skyldu, því að svo var áskilið í lögunum, að engin
sérstök stétt verkamanna skyldi ganga fyrir annari.
Ymsar tegundir húsa hafa verið reistar og eiga þau
samtals að geta hýst um 8 þús. manns. En hverfi
þetta hefir hlotið heitið Dacey Garden Citij. Áætlað
var, að alt fyrirtækið mundi kosta 16 milj. 200 þús.
kr. og gat forsætisráðherra Nýja Suður Wales þegar
lýst því yfir í júlí 1913, að það hefði fyllilega hepnast.
Þessi húsagerð ætti nú ekki síður en landa- og
lóðarkaupin að geta orðið íhugunarefni fyrir Reykja-
vfkurbæ og aðra smákaupstaði út um land, undir
eins og byggingarefni og verkalaun fara að lækka í
verði aftur. En þá ælti að byggja betur og ódýrar en
hjalla þá, sem Rvíkurbær hefir nú verið að hrófla
upp við hinn svonefnda »Suðurpól« hér i Reykjavik.
Ýmisfegt íleira mætti nú nefna sem dæmi félags-
legra framkvæmda og fyrirtækja af hálfu hins opin-
hera; en vandinn er, að um svo margvísleg fyrirtæki
er að ræða, að maður veit naumast, hvar maður á
helzt að bera niður. Þó skal nú enn vikið að tveim
til þrem dæmum, gasinu í Parísarborg og neðanjarð-
urbrautinni þar, og svo að lokum að hagnýtingu
Vatnsaflsins víðsvegar um lönd.
Fyrir 13 árum voru gasstöðvar Parísarborgar eign
óflugs hlutafélags, sem alt af var að færa sig upp á
skaftið við viðskiftavini sína. Að lokum var gas-
verðið orðið svo hátt, að fólki tók að ofbjóða. Sá
horgarráðið í París þá ekki annað ráð vænna en að
hlaupa undir bagga með gjaldendum og greiða a/3
gasverðinu eða 10 centíma (c. 7 au.) fyrir hvern