Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Blaðsíða 78
236
Ágúst H. Bjarnason :
l iðunn
þó því að eins, að þær hafi svo valinkunnum og
-þrautreynduni mönnum á að skipa, að þeim sé trú-
•andi fyrir slíkum fyrirtækjum, er varða heill og vel-
ferð almennings og ef til vill alls landsins, bæði í
bráð og lengd. —
Auk þess sem sócíalisminn þannig er að komast
á í verki víðsvegar um heim, virðast stríðslokin ætla
að verða þau, að hann setjist að stjórn víðsvegar
um lönd. Þar á ég alls ekki við skrílræði bol-
chevika á Rússlandi, er naumast getur talist til sócíal-
ismans, heldur hina nýju stjórn Þýzkalands og þýzka
Austurríkis, sem virðist eindregið sócíalistisk eftir
ummælum hennar að dæma. í yfirlýsing sinni til
þjóðarinnar 10. nóv. þ. á. kemst hún meðal annars
svo að orði: »Þjóðfélagsfyrirkomulagið í Þýzkalandi
er svo úr garði gert og skipulag efnahagsmála og
stjórnmála svo fullkomið, að hægt er fljótlega og
reglulega að breyta framleiðslutækjum auðvaldsins i
það horf, sem sócíalisminn heimlar, og sú breyting
þarf ekki að valda sterkum hreyfingum. En hún er
nauðsynleg til þess, að reist verði nú á hinum
blóðugu rústum nýtt hagfræðilegt skipulag, sem frelsa
megi fjöldann frá þrældómi efnaleysisins og menn-
•inguna frá eyðileggingu. Allir starfsmenn andans og
verkamenn handanna, sem þessi hugsjón hefir fyR
og af heilum hug vilja berjast fyrir framkvænid
hennar, eru hér rneð kvaddir til samvinnu að þessu
marki.«
»Verkainanna- og hermannaráöið hefir þá föstu
sannfæringu, að í öllum heiminum sé i undirbúning1
bylting, er fari í sömu átt og þessi. Það treystir þw>
að öreigalýður annara landa geri alt, sem í hans
valdi stendur til þess að hindra það, að hinni þýzku
þjóð verði misboðið nú i lok ófriðarins.«
Undarlegt, að þessi bylting skyldi verða, keisara-
veldin líða undir lok og þjóðveldin rísa, einmitl a