Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Side 26

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Side 26
184 Ágúst H. Bjarnason: [IÐUNN stæði vort, og það sem meira er um vert, fullveldi vort viðurkent. Er það nú hér eftir mest undir sjálf- um oss komið, að vér getum haldið því, eflt það og treyst. Sjálf sambandslagagerðin mun og hér eftir lalin svo merkilegur atburður í sögu lands vors og þjóðar, að ekki má lála hjá líða að minnast hennar nánar. Og þá er ekki síður maklegt að minnast manna þeirra, sem annaðhvort áttu frumkvæðið að henni eða störfuðu mest og bezt að samningi hins Nýja sáttmála. Frumkvæðið til þessarar sambandslagagerðar milli íslands og Danmerkur mun mega rekja til sjálfs konungs vors, Kristjáns hins Tíunda, þá er hann í ríkisráðinu 14. nóvbr. f. á. lét svo um mælt í greinargerð sinni fyrir synjun siglingafánans, að hann gæti eigi fallist á tillögu forsætisráðherra íslands nema því að eins að jafnfraint lægi fyrir honum til staðfestingar lög um allsherjarskipun á réttar- sambandi landanna, Danmerkur og íslands. í sam- ræmi við þetta tjáði og forsælisráðherra Dana, C. Th. Zahle, dönsku stjórnina fúsa til þess að taka upp samninga um sambandið, og mun forsætisráð- herra vor, Jón Magnússon, þá eða síðar hafa orðað það, að reynandi væri að senda hingað menn af Dana hálfu lil samningagerðar í Reykjavík. Eftir að samningaleiðin hafði verið samþykt í þing- um beggja landanna í apríl og maímán. þ. á., kvaddi ríkisþingið til farar þessarar þá C. Hage ráðlierra, I. C. Christensen, F. J. Borgbjerg ogpróf. Erik Arup. Komu þeir liingað um mánaðamótin júní og júlí, ásamt tveim riturum, þeim cand. juris Funder og Magnúsi Jónssyni cand. jur. & polit. En al- þingi kjöri af sinni liálfu til samningagerðarinnar þa Jóhannes Jóhannesson bæjarfógeta, forseta sam. alþingis, próf. Einar Arnórsson, Bjarna Jónsson

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.