Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Side 43

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Side 43
IÐUNN] Heimilið. 201 með lítilli fyrirhöfn, en til ósegjanlegrar prýði og ánægju fyrir heimilið. Þó margur liafi ánægju af slíkum hlutum, þá vantar framtakssemi og kunnáttu til að koma því á stofn. Yfir höfuð þyrfti það ekki að auka svo mjög útgjöld fólks, þótt það hefði ýmis- legt fegurra og vistlegra í kringum sig en alment gerist, bæði utan húss og innan. Ræður þar mestu um góður vilji, þrifnaður og smekkvísi. Skelfilegur munur getur verið á tveim álíka efn- uðum heimilum, alt eftir því, hvaða andi rikir þar. Það er hörmulegt, þegar bóndinn er búinn að byggja öýtt hús með ærnum tilkostnaði, og svo getur samt engum liðið þar vel, þegar inn kemur, af því að ftkonan kann ekki að búa í húsi«. Svo segir i biblíunni, að »andi guðs hafi svifið yfir vötnunum«. Eitthvað svipað má segja, þegar maður kemur á bæ eða í hús. Það er eins og ósýni- 'egur persónugervingúr af húsráðendunum komi á naóti manni undir eins í dyrunum og svífi um í her- fiergjunum, ýmist stifur, kaldur og óviðfeldinn, eða láftur, hlýr og viðfeldinn. Á góðu heimilunum er eius og myndirnar á veggjunum og blómin í glugg- Unum brosi við manni og segi: »Velkominn, gestur ttfinn! vertu nú eins og þú sért heima hjá þér«. En a fiinum þvert á móti; og einkum finst mér eins og þessi heimilisandi segi mér, hvernig konan er. Já, niaður þarf ekki alveg inn í húsin til þess að verða vur við þennan anda. Ég kom einu sinni á bæ og sa þrjár götugar þvottaskálar kringum bæinn, tvær í ^algarðinum og eina hjá fjóshaugnum. En þegar ég k°ui inn, fór konan að þvo þeim óhreinustu börnum, sem ég hefi séð, upp úr ofurlítilli — matarskál. Mér k°m það eigi á óvart. Nei> það er margt af þessu smærra, sem við Purfum að laga og getum lagað. Það er nú t. d. Pessi ósiður, að vera altaf að fá til láns í kaup-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.