Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Page 46

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Page 46
204 Þórunn Ricliarðsrtóttir: 1 IÐUNtí hann alt að einu inn með kolskörungnum eða ullar- kambinum sínum. Karlmaðurinn dregur naglann út með naglbít, konan nær honum strax með sykur- töngunum eða með skærunum sinum. Ef karlmaður- inn ætlar að skrifa bréf, verður hann að sitja við borð, fá nýjan penna og helzt láta börnin fara útr svo að þau trufli hann ekki. Konan sezt á kistil með blað á kné sér, tekur pennaredda, sem börnin hafa párað með í hálfan mánuð, þurkar af bonum ryðið og skrifar, þótt krakkarnir orgi og ólmist í kringum hana og hangi jafnvel á henni eins flugur á fiski. Einhver fyndinn náungi hefir sagt, að »ef konan að eins kynni að smíða skip, þá væri óhætt að hleypa henni í land á eyðieyju, ef hún hefði hjá sér liárnáb tannbursla og venjulegt stigvél. Hún væri þá komin til mannabygða, áður en mánuðurinn væri úti á sjo- færum báti, sem hún hefði sjálf smíðað með þess- um tækjum sínuin!« Þetta, þó í gamni sé, sýnir það, að karlmenn hafa fundið, hversu fjölhæfar konur eru og úrræðagóðar, þegar í harðbakkann slær. Það blunda svo mörg öíl í mannssálinni, að eng" inn veit, hvað með manninum býr, ekki einusinni wmannsins andi, sem í honum er«, fyr en einhver ófyrirséð atvik kalla á og knýja fram það, sem með þarf í þann svipinn. Þá er eins og stutt sé á ein- hvern hulinn rafinagnshnapp eða eins og hólf opnist í heila manns, sein enginn vissi, að til væri, og þaðan streymir einmitt sá kraftur eða eiginleiki, sem útheimtist gagnvart þörfinni, sem kallar. F*að er ekki alt svo stórt, sem þarf til lagfæringar einu og öðru bæði af bæ og á; það er þetta »marga og sniáa«> sem gerir heildina fullkomna. Michel Angelo, ítalskur fjöllistamaður, einhver hinn mesti, er heimurinn hefir alið (1475—1564), var einu sinni að mála eitt af hinum heimsfrægu málverkum sínum, þá er vinur hans einn sá bja

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.