Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Side 54

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Side 54
212 íslenzkir listamenn: iiðunN kennileg og skrítin og langaði til að teikna liana. Hann heilsaði henni og spurði, hvaðan hún væri. Hún var þá ofan af Kjalarnesi. Stundi hann því næst upp bónorðinu og bað liana um að »sitja fyrir« sér, á meðan hann teiknaði mynd af henni. En við það var ekki komandi og hún hryggbraut hann. En listamannsaugað hafði verið að verki á meðan, og ekki krotaði hann myndina af kellu á neglur sér eins og Le- onardo da Vinci var vanur að gera, heldur ílýtti hann sér heim ogteiknaðihana, þegar heim kom- Siðan fór hann niður á bryggju um kvöldið, um það leyti sem hann vissi að bátur- inn var að fara. Þar hitti hann kellu aftur og ber nú saman frummynd og eftirmynd og þykir líkingin góð. En þetta sýnir bezt, hversu listamannsaugað i Ríkharði er viðkvæmt og höndin hlýðin og auðsveip. þegar því er að skifta; og myndin ber þess vott, hversu næmt auga Ríkharður hefir fyrir því, sem er sérkennilegt og jafnvel smáskrítið. Gætir þessa a mörgum myndum hans og er þá ekki laust við, að hann hendi ofurlítið gaman að þvi, sem honum þykir afkáralegast við aðra, en góðlátlegt er gamanið og græskulaust. Þá er brjóstlíkanið af Magnúsi Stephensen lands- höfðingja áttræðum. Er það eitt með því bezta, sem Ríkharður hefir gert. Einkum er augnsvipurinn til-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.