Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Side 60

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Side 60
218 Goetlie: [IÐUNN komið er í hana. En hann bregður krumlunni um bakkann og hugsar með sér, hvort hann muni ekki geta sent mönnunum einhverja þá galdraflugu — eins og t. d. »spönsku veikina« —, er þeir vari sig ekki á, og hvort spíkin sín muni þá ekki bíta á ný. — Myndin er ekki fögur og á ekki heldur að vera það; en hún segir alt, sem hún á að segja, í sem fæstum og átakanlegustum orðum — og meira til! Svona vona ég að list Ríkharðar Jónssonar verði framvegis, hvort sem hann nú lýsir heldur blíðu eða stríðu, fríðu eða miður fríðu, að hún verði »fast- huga«, sönn og einföld og losi sig við alt óþarfa útflúr og útúrdúra. Á. H. B. Örn og dúfa. Eftir Goethe. Arnarungi vængjum veifði veiða til. En bogmaður því skeyti skaut, er skar á aflsin vængsins hægra, svo o’ní kjarrið örninn hraut. Þar laut liann þrautum þriggja dægra. Hann kiptist við af kvöl, en kærði lítt, þótt biti sár. Um nætur langar, langar þrjár hann leið það böl.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.