Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1919, Síða 71
IÐUNN] Er sócíalisminn i aðsigi. 229
Hús borgarinnar. IIús einstaklinga.
Fyrir 2 herbergi og eldhús 280 kr. 306 kr. á ári
— 3 — — — 360 — 440 — - —
— 4 — — — 432 — 648 — - —
Og þó eru íbúðir borgarinnar yfirleitt betur úr
garði gerðar og jafnan leigðar sama verði. Húsaleigan
í einstakra manna húsum fer aftur á móti sí-hækk-
andi, hækkaði t. d. á 8 árum frá 1902—10 um 29%.
Árið 1914 bygði borgin 180 íbúðir í viðbót við það,
sem hún bafði áður bygt, og svaraði það að öllu
leyti kostnaði. Tekjurnar af húsunum bafa reynst
nægar til að borga bæði rentur og afborganir, svo
og skalta þá og skyldur, er á húsunum bvila, auk
viðhaldskostnaðar.
En það er ekki svo sem að Zúrich hafi verið ein
um þetta. Árið 1912 veitti borgarráð Parísar þá
feiknaupphæð 144 milj. kr. til þess að byggja fyrir
bús á kostnað borgarinnar og skyldi búsaleigan
ákveðin með lögum. Sama ár var það ákveðið i
borgarráði Buenos Ayres að byggja 10,000 hús á
kostnað borgarinnar eða 2000 hús á ári i 5 ár og
áttu i hverju húsi að vera 5 herbergi og eldhús, en
leigan fyrir hvert þessara húsa skyldi vera 90 kr. á
mánuði, með því ágætis ákvæði, að húsið yrði eign
leigjandans eftir ákveðið árabil, ef hann stæði jafnan
1 skilum með leiguna.
Eitlhvert slærsta og glæsilegasta fyrirtækið í húsa-
gerð er þó það, sem framkvæmt hefir verið siðustu
5 árin í Sydney í Ástraliu. Árið 1911 var húsaleigan
Þar í borg komin upp úr öllu valdi, og af ýmsum
ástæðum, sí-auknum innflutningi og mannfjölgun, si-
hækkandi byggingarkostnaði sökum sífeldrar hækk-
unar á byggingarefni og verkalaunum; auk þessa
höfðu heil borgarhverfi verið rifin til þess að rýma
tyrir járnbrautum m. m. Til þess nú að rejma að
ráða bót á þessum vandræðum, kom ríkisstjórnin í