Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1930, Síða 55
!ÐUNN
Vísindaleg rannsókn á eðli drauma.
Það tvent er ólíkast, að dreyma drauma
og að rannsaka eðli draumlífsins.
I.
Grein einsog þessi getur verið nokkur hjálp til að átta
sig á því, hvað er vísindaleg rannsókn á eðli drauma. Mig
dreymdi að ég sæi tjörn, eða hluta af tjörn, réttara sagt.
Vatnið í tjörninni var einkennilega tært, og niðri í því
sá ég á eitthvert dýr, sem ég gat þó ekki áttað mig á.
Næst í draumnum er, að ég sé stórt dýr, sem hleypur
eftir tjarnarbakkanum. Eg hefi einhverja, þó mjög óljósa
hugmynd um, að þetta sé sama dýrið, sem ég hafði séð
niðri í vatninu. Eg sé aftan á dýrið hægra megin; ég
sé að út úr síðunni á því standa eins og litlir, van-
skapaðir fætur. Þekkist ekki slíkt á neinu spendýri hér
á jörðu. Þar næst sé ég dýrið hlaupa fyrir tjarnarend-
ann, og sé ég það þá greinilega mjög, og alveg á hlið-
ina á því. Það er mjög stórt dýr, svo að bera má saman
við fíl, en er þó nokkru lægra og til muna langvaxnara.
Rana hefir það, sem minnir allmikið á fílsrana, en er
þó talsvert styttri en- fílsrani, og öðru vísi vaxinn. Engar
höggtennur hefir það. Dýr einsog þetta er ekki til nú
hér á jörðu, og jarðfræðingar vita heldur ekki til þess,
að slíkt dýr hafi hér nokkurn tíma til verið.
II.
Það, sem fyrst verður fyrir til íhugunar, þegar rann-
saka skal, af skynsamlegu viti, draum einsog þennan,
löunn XIV. 4