Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1930, Síða 58
52
Vísindaleg rannsókn á eðli drauma.
IÐUNN
IV.
Draumurinn er býsna fróðlegur, þegar nógu vandlega
er að gætt. Á því getur ekki vafi leikið, að draumgjafi
minn er á annari jarðstjörnu, en ekki á vorri jörð.
Dýrið, sem mig dreymdi, er hér ekki til, en hin mesta
fjarstæða að gera ráð fyrir því, að það sé ímyndunarafl
dreymandans, er skapi dýrið sem draumsjón. Eftir að
hafa athugað þúsundir af draumum, segi ég hiklaust:
draumgjafinn er vanalega íbúi annarar jarðstjörnu. Með
rannsókn draumlífsins er fengin óyggjandi vissa fyrir
lífsambandi stjarnanna á milli. Og það er óhætt að bæta
því við, að þessir íbúar annara jarðstjarna, sem svo
ótvíræðlega er fengið samband við, eru vanalega fram-
liðnir héðan af jörðu, fólk, sem áður hefir hér lifað, en
eftir líkamsdauðann hér á jörðu fengið nýjan líkama á
annari jörð, á þann hátt, sem lesa má um í Ennýal.
Mega menn reiða sig á, að hér er vísindalega að verið
og bygt á traustri undirstöðu. Ráðningin á gátu
draumlífsins hefir reynst þýðingarmikil, jafnvel mjög
langt fram yfir það, sem ég gerði mér vonir um, þegar
ég byrjaði á þessum rannsóknum. Og svo langt er frá
því, að þessar rannsóknir mínar séu óvísindalegar, eins
og mér hefir verið borið á brýn — og það jafnvel af
öðrum eins gáfumanni og rithöfundurinn H. K. Laxness
er — að þær eru mjög miklu vísindalegri en nokkrar
þær rannsóknir, sem áður höfðu verið gerðar á því efni.
Og raun mun sýna, að um er að ræða það, sem á
þýzku mætti nefna Entscheidungsentdeckungen, upp-
götvanir, sem munu leiða til þess að ný mannöld hefjist.
Björtu ljósi er nú brugðið yfir miðilfyrirburðina, sem,
að vonum, hafa áður þótt svo óskiljanlegir og ósamstæðir
við þá vísindalegu þekkingu, sem fengin var, björtu ljósi