Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1930, Síða 116
110
Heimskautafærsla.
IÐUNN'
verið slitin í sundur með nokkuð heitari skeiðum, og
eins hin heitu tímabil af dálítið kaldari tímum. Þannig
hafa verið jafnvel mörg hlýviðrisskeið á jökultímanum
(interglacial-skeið). Eins hefir loftslag hvað eftir annað
ýmist kólnað nokkuð eða hitnað til skiftis síðan á jökul-
tímanum. Þetta virðist benda á það, að hinir árlegu
hringar eða sveigar, sem heimskautin fara, séu liðir í
Á kortinu sést útbreiðsla jökla á norðurhveli jarðar á jökultíman-
um, en örvaoddarnir sýna hreyfingarstefnu íssins.
stærri hringum, sem þau fari að líkindum á þúsundum
ára og sem svari til hinna minni loftslagsbreytinga, eins
og þeirra, sem orðið hafa hér nokkurum þúsundum ára
fyrir landnámstíð (purpura-skeiðið), en að þeir hringar
séu aftur liðir í stærri hringum, sem svari til hinna
meiri loftslagsbreytinga, jökultíma hitabeltislandanna og
hitabeltisloftslags heimskautalandanna.
Eins og kunnugt er, eru jökulminjar frá jökultímanum
(pleistocen) víðsvegar í tempruðu beltunum, einkum næst
heimskautabaugunum, bæði á norður- og suðurhveli
jarðar. Þess vegna hafa ýmsir álitið, að jökultíminn hafi
stafað af kólnun loftslags samtímis yfir alla jörðina. En