Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1930, Side 75
iðunn
Ungir rithöfundar.
69
en að öðrum þræði draumlyndur og tilfinningaríkur.
Hinn viðkvæmi drauma- og geðhrifamaður er það, sem
ummyndar æsku-unnustuna og gerir hana að dýrðling —
og það atriði er svo hinn mikli örlagavaldur í lífi Hall-
dórs, að samanborin við dýrðlinginn verður hver og ein
raunveruleg kona óálitleg og andlega snauð. Hann mis-
býður Salvöru af þessum ástæðum, og hún verður svo
aftur til þess í hefndarskyni að binda athafnalíf hans,
svo að þróttur hans og lífsfjör geta eigi fengið útlausn
í stórvirkjum, er hann stofni til af ráðnum hug. Draum-
arnir verða því meira vald í lífi hans en ella og valda
því, að honum verður enn þá ómögulegra en annars
mundi hafa orðið að sætta sig við heimili sitt og sam-
lagast því fólki, er hann umgengst.
Þegar lýst er lífi Halldórs eftir að hann er orðinn
bundinn í báða skó, reynir mest á mátt höfundar. Les-
andanum verður á að spyrja: Getur nú höfundur lýst
svo sálarkvölum Halldórs, að stígandi haldist í frásögn-
inni — og hvernig kemur nú fram sú sprenging, sem
ýtrasta þensla sálaraflanna hlýtur að hafa í för með
sér? Og þá er ég kominn að því, sem ég lít á sem
hina einu verulegu veilu í sögunni. Lýsingin á sálar-
kvölum Halldórs nær aldrei á mér verulegum tökum,
og þær orsaka ekki nein straumhvörf í bókinni. I stað
þess, að stígandin aukist í lýsingunni á sálarlífi Hall-
dórs, dregur úr þrótti og fjöri frásagnarinnar um hríð,
og þá er lesandinn fer að gerast óþolinmóður, blása
nýir stóratburðir, eins og t. d. hrakningarnir, strandið
°g björgunin, nýju lífi og fjöri í söguna, en þetta eru við-
burðir, sem orsakast alls ekki af því, sem bent hefir verið
á að sé örlagavaldurinn í lífi Halldórs og hið mjög svo
eftirtektarverða sálfræðilega atriði. Þó að því þessum
viðburðum sé mjög vel lýst, verða þeir, eins og áður