Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1930, Qupperneq 78
72
Ársril Nemandasambands Laugaskóla.
IÐUNN
stjórn hans hefir Nemandasamband skólans um fjögurra
ára skeið gefið út allstórt ársrit, þar sem birt hefir verið
skýrsla og fleiri greinargerðir, er varða Laugaskóla, en
auk þess ræður, ritgerðir og ritgerðabrot, bréf og kvæði,
einkum eftir kennara og nemendur skólans.
Nemöndum Laugaskóla er skift í tvær deildir. I yngri
deild er veitt tilsögn í þessum námsgreinum:
Islenzku, landafræði, þjóðfélagsfræði, heilsufræði, dýra-
fræði, reikningi, teikningu, smíði, saumum og sundi.
I eldri deild skólans eru sömu greinir kenndar, að
undan skilinni þjóðfélagsfræði og heilsufræði, en auk
þess mannkynssaga.
Sameiginleg kennsla fyrir báðar deildir er í þessum
námsgreinum:
Islendingasögu, dönsku, ensku og kristnum fræðum.
Sú tilhögun á námi Laugamanna er einkum athyglis-
verð, að allir nemendur í eldri deild velja sér eitthvert
aðalviðfangsefni, og er líður á skólaárið, velja nemendur
sér kjörsvið innan þessa aðalviðfangsefnis.
Þetta fyrirkomulag byggist á 5. grein í reglugerð Al-
þýðuskóla Þingeyinga; hún er á þessa leið:
»1 eldri deild skal kenslan miðuð við sjálfstæðan ein-
staklingsþroska nemenda. Þar skal fara saman samtals-
kensla, fyrirlestrar og bókasafnsstarfsemi. Aður en kenslu
er lokið hvert ár, skal hver yngri deildar nemandi, sem
halda vill áfram námi við skólann, hafa valið sér í sam-
ráði við kennara sína aðalnám næsta vetur. Hann skal
og hafa valið sér verkefni til sumarstarfs, er sé í sam-
ræmi við það aðalnám. Skal áherzla lögð á, að gera
nemendur sem sjálfstæðasta við námið og kenna þeim
sem bezt tök á því, að afla sér þekkingar og þroska á
eigin hönd«. (Ársrit Nemandasambands Laugaskóla 1.
ár, bls. 23).